Vinkonur leggja 353 milljónir í sundlaug 3. janúar 2011 09:10 Forsetahjónin tóku fyrstu skóflustunguna að sundlauginni ásamt þeim Lilju og Steinunni. MYND/GVA
Samkomulag hefur náðst milli Skagafjarðar annars vegar og vinkvennanna Lilju Pálmadóttur og Steinunnar Jónsdóttur hins vegar um lokauppgjör vegna sundlaugar á Hofsósi sem Lilja og Steinunn færðu sveitarfélaginu að gjöf.Samkvæmt upplýsingum frá Margeiri Friðrikssyni, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Skagafjarðar, nemur heildarfjárhæð gjafar Lilju og Steinunnar 353 milljónum króna. Það segir Margeir vera einstakt.Óvissa hefur hins vegar verið með lokauppgjör vegna tæplega 41 milljónar króna sem stendur út af, að mestu vegna verðbóta á verktímanum og búnaðar sem sveitarfélagið sjálft vildi bæta við sundlaugina.Guðmundi Guðlaugssyni, fyrrverandi sveitarstjóra, var falið að ganga frá samkomulagi við Lilju og Steinunni. Í greinargerð Guðmundur með tillögu að lokauppgjöri kemur fram að við verklok hafi ekki verið augljóst hvernig túlka bæri einstök atriði samnings frá því í júní 2007 um gjafagjörninginn. Eins hafi í veigamiklum atriðum ekki verið farið eftir umsömdu fyrirkomulagi."Sú staða gerir það að verkum að erfitt er að segja til um nákvæmlega hver hámarksfjárhæð gjafar á að vera samkvæmt samkomulaginu og þar með greiðslu allra eftirstöðva kostnaðar og með því klára verkið. Þegar nálgaðist verklok tók sveitarfélagið yfir greiðslu alls kostnaðar við að ljúka framkvæmd, að frágengnu samkomulagi við gefendur þar um í ljósi ofangreindrar óvissu. Hefur því safnast upp verkkostnaður hjá sveitafélaginu sem aðilar hafa átt viðræður um að undanförnu hvernig með skuli fara," útskýrir Guðmundur.Lilja og Steinunn lýstu sig reiðubúnar að greiða 15 milljónir af fyrrnefndri 41 milljón. Þær vísuðu einnig í mat tæknilegs ráðgjafa sem taldi hönnunarkostnað of háan. Því segist Guðmundur ósammála en samkvæmt samkomlagi sem nú hefur náðst munu Lilja og Steinunn fá þá uppæð sem hugsanlega fellur til vegna lækkunar á hönnunarkostnaði. Þá mun sveitarfélagið greiða 16,8 milljónir króna en Lilja og Steinunn 21,1 milljón, takist að fá hönnunarkostnaðinn lækkaðan um 3 milljónir króna."Vil ég taka það skýrt fram að ekki má túlka það sem hér er fram sett að neinu leyti í þá veru að í felist vottur af vanþakklæti þegar horft er til hinnar höfðinglegu gjafar," segir Guðmundur Guðlaugsson í greinargerð sinnu um lyktir málsins.gar@frettabladid.is
Mest lesið Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Fleiri fréttir Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Sjá meira