Ríflega 80% strætófarþega ánægð 9. febrúar 2011 12:53 71% strætisvagnafarþega eru ánægðir eða mjög ánægðir með stundvísi vagnanna, samkvæmt niðurstöðum þjónustmatsins
Ríflega átta af hverjum tíu sem ferðast með strætisvögnum Strætó bs. eru ánægðir með þjónustuna. Þetta er megin niðurstaða árlegs þjónustumats, sem framkvæmt var meðal strætisvagnafarþega fyrir skömmu. Ánægjan með þjónustu Strætó er svipuð nú og árið á undan en þá hafði ánægjan hins vegar aukist umtalsvert frá árinu þar áður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó bs.Viðmót og aksturslag bílstjóra Meðal helstu niðurstaðna könnunarinnar er að 84,4% strætisvagnafarþega voru annað hvort ánægðir eða mjög ánægðir með strætisvagnaferðina. Ef skoðaðir eru nokkrir þeirra einstöku þátta sem mældir voru má nefna að um 71% farþega voru ánægðir eða mjög ánægðir með aksturslagið, en nokkuð fleiri, eða um 78%, voru ánægðir eða mjög ánægðir með viðmót vagnstjóranna. Þá voru um 71% strætisvagnafarþega ánægðir eða mjög ánægðir með stundvísi vagnanna. Flestir undir 35 ára Auk þess að mæla ánægju farþega í strætisvögnum Strætó var kannað hver tilgangur ferðarinnar var, hve oft viðkomandi notar strætisvagna, aldursdreifing farþega, kynjaskipting, þjóðerni og fleira. Niðurstöður úr þessum þáttum eru einnig nokkuð svipaðar og frá árinu á undan þótt ákveðin þróun sé merkjanleg. Konur voru bæði árin lítið eitt fleiri en karlar meðal farþega, og næstum því tveir af hverjum þremur farþegum eru undir 35 ára að aldri.Færri útlendingar Athygli vekur að nokkur fækkun er í hópi útlendinga í strætó milli ára, úr 12,8% farþega í 7,2% nú. Þrátt fyrir þessa fækkun sýna mælingar á farþegafjölda hjá Strætó aukningu á farþegum milli ára, sem þýðir að Íslendingum sem nota strætó hefur fjölgað umtalsvert síðustu misseri.Stöðugleiki milli ára „Við erum að sjálfsögðu ánægð með að langstærstur hluti farþega virðist vera ánægður með þjónustuna sem þeir fá hjá Strætó. Þessi mæling nú sýnir ákveðinn stöðugleika milli ára, en síðustu tvær mælingar sýna meiri ánægju en nokkuð annað ár frá stofnun Strætó bs. En það er alltaf tækifæri til að bæta sig og kannanir eins og þessi nýtast best til þess að sjá hvar við getum gert betur," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó. Úrtakið í þjónustumatinu var um 650 farþegar Strætó. Þátttakendur fylltu út eyðublað með spurningum þar sem spurt er um þá þjónustu sem þeir fá í viðkomandi ferð auk þess sem kallað er eftir almennum athugasemdum svarenda um þjónustu Strætó. Þórhallur Örn Guðlaugsson, dósent í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, sá um úrvinnslu gagna.
Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Erlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“