Síðasti naglinn í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi 12. apríl 2011 18:55
Ríkisstjórnin fer nærri því að reka síðasta naglann í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi, með áformum sínum um að takmarka leigutíma jarðhitaauðlinda við þrjátíu ár. Þetta sagði forstjóri HS Orku á fundi Jarðhitafélags Íslands í dag. Stendur jarðhitinn í stjórnkerfinu? Þannig var spurt á fundinum en þar gagnrýndi Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, hvernig stjórnsýslan höndlaði mál jarðhitageirans. Hann sagði að það sem væri kannski verst væri að fá ekki svör. Hlutirnir væru ekki að gerast, í skipulagsmálum hjá sveitarfélögum, hjá stofununum. Frestir væru ekki virtir. Allsstaðar væru tafir. Þær leiddu til kostnaðarauka og tafa. Ekki væri hægt að standa við gerða samninga. "Og þá svona fjarar undan þessu smámsaman, ef fram fer sem horfir," sagði Júlíus. Forstjórinn sagði að undirstofnanir ráðuneyta virtust alls ekki telja það hlutverk sitt að vinna með framkvæmdaaðilum, - en þannig hafi það ekki verið áður. Nánast frá því farið var að nýta jarðhitann til raforkuframleiðslu fyrir stóriðju hafi ástandið verið svona. Það sé ekki að minnka, ágerist ef eitthvað er, segir Júlíus. Spurður hvort hann skynji ástandið þannig að í lagi sé að nýta jarðhitann, svo fremi að það sé ekki til stóriðju, kveðst Júlíus telja alveg ljóst að áherslan á umhverfisvernd stóraukist ef rafmagnið eigi að fara til stóriðju. Forstjóri HS Orku ýjar að því að með nýjasta útspili ríkisstjórnarinnar, um þrjátíu ára hámarks leigutíma jarðhitaauðlinda, sé komið að endalokum frekari jarðhitanýtingar á Íslandi. Það verði ekki leyst nema með stórhækkun orkuverðs. "Það væri eina leiðin til þess að þetta yrði ekki síðasti naglinn í líkkistuna," sagði Júlíus.
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Sjá meira