Kemur með meiri rigningu 30. ágúst 2011 06:00 Svona var umhorfs í bænum Waterbury í Vermont í gær þegar Írena var farin hjá. fréttablaðið/AP
Fellibylurinn fyrrverandi, Írena, kemur upp að ströndum landsins á fimmtudag, en líkast til verður hún ekki frábrugðin þeim 300 lægðum sem koma upp að landinu á hverju ári. Írena olli miklum skemmdum á meðan hún var í hámarki og æddi yfir Karíbahafið og ríkin á norðausturströnd Bandaríkjanna. Henni þvarr þó kraftur eftir því sem norðar dró og var stödd yfir Kanada í gær. Hátt á þriðja tug manna létu lífið í Bandaríkjunum, milljónir manna þurftu að búa við rafmagnsleysi og víða ollu flóð miklum skemmdum. Mesta tjónið varð reyndar af vatnsflóðinu sem streymdi úr skýjunum frekar en af völdum þess ofsaroks sem fylgdi Írenu, enda varð það rok ekki jafn öflugt og óttast var fyrir fram. Lestarkerfið í New York var tekið úr notkun áður en stormurinn skall á um helgina og óttuðust íbúar borgarinnar öngþveiti þegar það færi af stað aftur. Þá þurfti að fella niður meira en 9.000 flugferðir. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands mun Írena renna upp að suðurströnd landsins á fimmtudag. „Það á ekki að verða neinn stormur af því. Það verður suðaustanátt og rigning á sunnanverðu landinu. Lægðin mun svo staldra við suður af landinu þar sem hún eyðist svo um helgina.“- þj, gb
Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira