Ráðist í skammtímaaðgerðir meðan frekari skoðun fer fram 13. janúar 2011 05:45 Þessi voru á leið upp í strætisvagn númer 51 sem gengur til Hveragerðis og Selfoss þegar ljósmyndara bar að garði í Mjódd í Reykjavík í gær. Í tillögum um bættar almenningssamgöngur segir að auka þurfi hraða og tíðni ferða, auk þess sem lækka þurfi verð fargjalda.Fréttablaðið/GVA
Fela á sveitarfélögum í auknum mæli framkvæmd almenningssamgangna samkvæmt hugmyndum í nýrri úttekt innanríkisráðuneytisins. Framtíðarstefnumótun almenningssamgangna í tengslum við samgönguáætlun til tólf ára verður lögð fram í mars. Í nýbirtri skýrslu kemur fram að skortur á skipulagi og hátt verð fæli fólk frá almenningssamgöngum í einkabíla. Unnið er að breyttu fyrirkomulagi almenningssamgangna í landinu. Að því er fram kemur hjá innanríkisráðuneytinu nær sú vinna til skipulags samgangnanna og styrkveitinga til þeirra. Í gögnum ráðuneytisins kemur fram að undanfarin ár hafi nýting almenningssamgangna verið bágborin í meira lagi. Þannig séu að jafnaði færri en þrír farþegar á ferð á 26 af 36 styrktum sérleiðum hópferðabíla og innan við einn á 10 leiðum. Sömuleiðis kemur fram að nýting á styrktum flug- og ferjuleiðum sé langt undir flutningsgetu. Ráðuneytið hefur birt tvær skýrslur um almenningssamgöngur. Annars vegar er það skýrsla starfshóps ráðuneytisins og Vegagerðarinnar frá því í september í fyrra og hins vegar skýrsla frá því í maí 2010 sem er afrakstur funda samgönguráðs með svæðasamtökum sveitarfélaga um almenningssamgöngur. Með birtingu skýrslnanna upplýsir innanríkisráðuneytið um stöðu og stefnu þeirrar vinnu sem hafin var á vettvangi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í málaflokki almenningssamgangna, en hún er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí í hittifyrra. Þar er kveðið á um að á kjörtímabilinu eigi að vinna áætlun um sjálfbærar samgöngur í samvinnu við sveitarfélögin, með það að markmiði að draga úr þörf fyrir einkabílinn. „Í slíkri stefnu verði almenningssamgöngur um allt land stórefldar og fólki auðveldað að komast leiðar sinnar gangandi eða á reiðhjóli. Almenningssamgöngur verði sjálfsagður hluti samgönguáætlunar,“ segir í stefnuyfirlýsingunni. Fram kemur í frétt ráðuneytisins að unnið hafi verið að nýrri stefnu almenningssamgangna á tveimur sviðum. „Annars vegar hefur samgönguráð unnið að framtíðarstefnumótun almenningssamgangna í tengslum við samgönguáætlun til 12 ára sem lögð verður fram í mars 2011. Hins vegar hefur starfshópur ráðuneytisins og Vegagerðarinnar mótað hugmyndir um breytingar á fyrirkomulagi ríkisstyrkja til almenningssamgangna, sem eru aðallega samgöngur í dreifbýli og á milli landshluta og/eða sveitarfélaga.“Bara einn ferðamáti styrkturHerjólfur Í tillögum starfshóps innanríkisráðuneytisins og Vegagerðarinnar segir að ferjusiglingar til Vestmannaeyja verði boðnar út á ný á öðrum fjórðungi þessa árs þegar reynsla sé komin á nýja siglingaleið í Bakkafjöru. Huga þurfi að fargjaldahækkunum á leiðinni til þess að hún verði líklegri til að geta staðið undir sér.Fréttablaðið/StefánSkoðun starfshóps ráðuneytisins og Vegagerðarinnar er að léleg nýting almenningssamgangna hér á landi skrifist að hluta til á skipulagsleysi, skort á samhæfingu og takmarkað upplýsingaflæði. Auk þess sé verð þjónustunnar svo hátt að einkabíll sé í mörgum tilvikum vænlegri kostur. Starfshópurinn leggur til að þar sem stjórnvöld styrki almenningssamgöngur á vegum verði gjaldtaka ekki hærri en svo að hún verði undir eldsneytiskostnaði einkabíls.„Verðlagning í fólksflutningum á landi hefur verið með þeim hætti að hún er ekki líkleg til að fjölga farþegum í þeim ferðamáta,“ segir í skýrslu starfshópsins og bent er á að opinber afskipti af verðlagningu í formi hámarksverðs í útboðum hafi í reynd leitt til þess að það hafi orðið viðmiðunarverðið. „Eins og staðan er þá er í mörgum tilvikum ódýrara að ferðast einn í eigin bíl, ef aðeins er horft til eldsneytisverðs, en að taka rútu. Þetta er ekki líklegt til að fjölga farþegum, þessu þarf að breyta.“Eins er bent á að skort hafi á að hægt sé að kaupa samsett far á milli staða. Þá gæti farþegi keypt far frá fleiri en einum rekstraraðila og greitt eitt gjald. „Þannig getur fargjald á einni leið, til dæmis Ísafjörður-Reykjavík eða Þórshöfn-Reykjavík, orðið óeðlilega hátt þegar ferðin er samsett af tveimur eða fleiri rekstraraðilum á leiðinni. Koma þarf á samræmdu kerfi þar sem farþeginn greiði eitt fargjald óháð rekstraraðila eða uppgjöri þeirra á milli.“ Meðal annarra tillagna í skýrslu starfshóps innanríkisráðuneytisins og Vegagerðarinnar er svo að ekki verði styrktir fleiri en einn ferðamáti á hvern stað. Það leiði enda til óhagkvæmni og samkeppni milli tveggja styrktra samgöngumáta. Þá lagði starfshópurinn til að fallið yrði frá sérleyfum frá og með síðustu áramótum.Þá segir í skýrslu starfshópsins að endurskoða þurfi fyrirkomulag skatta og styrkja í almenningssamgöngum. Leggja eigi niður olíugjald og taka upp beina styrki til samtaka sveitarfélaga sem taki mið af íbúafjölda eða eknum kílómetrum á þjónustuleiðum. Um leið þurfi að rétta hlut strætó í Reykjavík, á Akureyri og Ísafirði með niðurfellingu á virðisaukaskatti.Fallið frá sérleyfum 2012Í frétt innanríkisráðuneytisins kemur fram að skýrslan hafi verið þar til skoðunar og að fundað hafi verið með höfundum hennar og starfsmönnum Vegagerðarinnar.„Ljóst er að hér er um tímabærar tillögur að ræða og margar gagnlegar ábendingar um hvernig má nýta betur fjármuni og vinna að markmiði um bættar almenningssamgöngur utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir í frétt ráðuneytisins. Þar kemur jafnframt fram að gert sé ráð fyrir að sveitarfélögum verði í auknum mæli falin framkvæmd almenningssamgangna og að komið verði upp samgöngumiðstöðvum sem þjóni ákveðnum svæðum, líkt og starfshópurinn hafi lagt til. Um leið segir að niðurstaða ráðuneytisins hafi verið að of skammur fyrirvari hafi verið til að falla frá sérleyfum um áramótin og lagt til að Vegagerðin framlengdi tímabundið, eða lengst út þetta ár, þá samninga sem lausir væru fyrir eða um áramót.Í millitíðinni ætlar ráðuneytið að grípa til skammtímaaðgerða meðan áfram sé unnið að úrbótum í almenningssamgöngum samkvæmt þeim markmiðum sem fram hafi komið. „Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að þegar verði tillögur starfshópsins mótaðar frekar. Megináhersla verði í því sambandi á viðræður við landshlutasamtök sveitarfélaga með það að markmiði að þau taki að sér aukið hlutverk varðandi skipulag og rekstur almenningssamgangna sem ríkið hefur styrkt. Stefna ber að því að gera langtímasamninga við landshlutasamtökin (byggðasamlög) um yfirtöku umræddra verkefna í síðasta lagi frá ársbyrjun 2012 og fjármögnun verkefna,“ segir í umfjöllun innanríkisráðuneytisins. Um leið á að kanna hvernig hægt sé að þróa hugmyndir um þjónustu- og upplýsingaborð fyrir farþega, auk annarrar endurskipulagningar.
Mest lesið Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira