SÍ: Breytir engu fyrir skuldara JMI og BBI skrifar 30. ágúst 2011 18:20
Seðlabanki Íslands sendi í dag frá sér svör við fyrirspurn Umboðsmanns Alþingis vegna verðtryggingar lána og framkvæmdar hennar. Seðlabankinn segir ekki skipta máli hvort greiðslur af láni eru verðtryggðar eða sjálfur höfuðstóll þess. Hagsmunasamtök heimilanna kvörtuðu til umboðsmanns Alþingis en þau töldu það reglur seðlabankans um að verðbætur skuli lagðar við höfuðstóla lána ólögmætar, því í lögum um vexti og verðtryggingu segi að verðbætur skuli lagðar við greiðslur, en ekki höfuðstólinn. Umboðsmaður sendi Seðlabanka Íslands fyrirspurn vegna málsins. Þar sagðist hann ekki sjá hvernig reglur bankans hefðu lagastoð. Í svari sínu bendir Seðlabankinn á að efnislega breyti það engu fyrir lántaka hvort lánveitandi leggi verðbætur við greiðslur eða höfuðstól lánsins. Seðlabankinn tekur dæmi. Lán uppá eina milljón, sem tekið er til 5 ára með 5% vöxtum og 10% verðbólgu, þar sem lántaki greiðir af láninu einu sinni á ári. Ef greiðslurnar yrðu verðtryggðar, í stað höfuðstólsins, myndi höfuðstóllinn lækka um tvö hundruð þúsund krónu með hverri greiðslu. Vöxtum yrði bætt við og verbætur svo lagðar við greiðsluna. Seðlabankinn ber þessar sömu forsendur svo saman við aðferðina sem notuð er í dag, þ.e. að höfuðstóllinn sé verðtryggður en ekki greiðslurnar. Höfuðstóllinn hækkar þá í takt við verðbæturnar og vextirnir eru svo lagðir við afborgunina. Seðlabankinn segir niðurstöðuna vera efnislega þá sömu. Það er, að það sem skuldarinn borgar hverju sinni er alltaf það sama, greiðslurnar eru jafnmargar og heildarkostnaður hans við lántökuna sá sami. Í svari sínu útskýrir bankinn einnig af hverju reglur Seðlabankans um framkvæmd verðtryggingar væru ekki samhljóða lagaákvæðum um verðtryggingu. Í lögum um vexti og verðtryggingu frá árinu 2001 segir að „greiðslurnar (af láni) skuli verðtryggðar". Í reglum Seðlabankans segir aftur á móti að „höfuðstóll láns breytist í hlutfalli við breytingar á vísitölu neysluverðs". Seðlabanki Íslands segir mikilvægt að skoða forsögu ákvæðanna til að skýra hvort ákvæði reglna bankans hafi viðhlýtandi lagastoð. Þegar almenn heimild til verðtryggingar kom fyrst inn í íslenskan rétt árið 1979 var heimilað að „sérstakur verðbótaþáttur vaxta, sem sé tengdur verðlagsbreytingum (...), leggist við höfuðstól láns". Í auglýsingum og reglum sem Seðlabankinn gaf út í kjölfar gildistöku laganna kom ítrekað fram að verðbótaþátturinn vegna verðtryggingarinnar legðist við höfuðstól lánsins. Hefur sú framkvæmd haldist síðan. Árið 1995 var vaxtalögum breytt á þá leið að verðtrygging fælist í því að „greiðslurnar (af láninu) skuli breytast í hlutfalli við verðvísitölu". Þessi breyting gekk í gegn án þess að stefnt væri að nokkrum breytingum í framkvæmd laganna.Því er núverandi framkvæmd verðtryggingar, eins og hún kemur fram í reglum Seðlabankans, í samræmi við upphafleg ákvæði sem innleiddu heimild til verðtryggingar í íslenskan rétt. Það sem höfuðmáli skiptir, samkvæmt svörum Seðlabankans, er sú staðreynd að hvort sem höfuðstóll lánsins er verðtryggður eða aðeins greiðslur af láninu breytir það niðurstöðunni ekki efnislega. Það hefur ekki áhrif á upphæð lánsins. Svar Seðlabankans má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann Innlent Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Innlent Fleiri fréttir Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Hundrað eldislaxar í Haukadalsá, ásakanir um samráð og blómlegt í Hveragerði Saka Storytel um að forgangsraða eigin efni á kostnað annarra Ekki tilkynnt um stórt gat á sjókví í nokkurn tíma þrátt fyrir eftirlit Taldi hundrað eldislaxa í neðri hluta Haukadalsár Tónlistarmaður taldi handtökuna ólögmæta en fór tómhentur heim Krefjast þess að ráðherra dragi ummæli sín til baka Samkeppniseftirlitið rannsakar Storytel Fá tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum Í samtali við norsku kafarana hvort þeir komi aftur Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Eldislaxar í Haukadalsá, Gnoðarvogur og samgöngur á Vesturlandi Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði