Máli á hendur Sigurjóni vísað frá 12. september 2011 20:00
Riftunarmál slitastjórnar Landsbankans gegn Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra, var fellt niður í héraðsdómi í dag, en slitastjórnin hafði krafið Sigurjón um endurgreiðslu á þrjúhundruð milljóna launagreiðslu. Slitastjórn Landsbankans höfðaði mál á hendur Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra, auk tveggja annarra starfsmanna bankans á síðasta ári vegna launa sem bankaráð greiddi mönnunum í aðdraganda falls bankans. Málið sneri að kaupréttarsamningum og öðrum greiðslum sem slitastjórnin vildi fá rift og krefjast endurgreiðslu á, alls á þriðja hundrað milljóna króna í tilviki Sigurjóns, en málareksturinn hefur staðið yfir frá áramótum. Málið var fellt niður í héraðsdómi Reykjavíkur í dag, en dómurinn úrskurðaði að slitastjórnin skyldi greiða Sigurjóni 700 þúsund krónur í málskostnað. Úrskurðurinn hefur ekki verið birtur. Páll Benediktsson, talsmaður slitastjórnar Landsbankans, segir að málið hafi verið fellt niður af tæknilegum ástæðum, en niðurstaðan hafi ekki áhrif á framgang málsins og bankinn muni áfram reyna að sækja féð. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Sigurjóns, segir hins vegar að málatilbúnaður slitastjórnarinnar hafi verið í skötulíki. Hann segir þó að skjólstæðingur hans hefði fremur kosið að fá efnislega niðurstöðu um hvort hann verði krafinn um endurgreiðslu fjárins, en ekkert er því til fyrirstöðu að slitastjórnin haldi málinu til streitu fyrir dómstólum þar til hún fæst.
Mest lesið „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Innlent Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Innlent Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Innlent Rýnt í ákærurnar: „Ég fékk nóg af hatri hans“ Erlent Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum Innlent Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Innlent Bein útsending: Rauða dreglinum rúllað út fyrir Trump Erlent „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Innlent Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ Innlent Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Innlent Fleiri fréttir SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Eins og löglærður forstjóri spítala væri að skera upp sjúklinga Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Eldur í ruslageymslu á Selfossi Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Ók á fimm til sex kyrrstæða bíla Næsta skref að tryggja að próf leigubílstjóra verði alfarið á íslensku „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Tilkynntur til lögreglu Flóamenn taka fálega í þreifingar Árborgara Óveðurský yfir Sólheimum og deilt á ríkisendurskoðanda Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Ekkert bólaði á ræðumanni Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Lýsti sjálfsvígshugsunum í pontu Alþingis Hinsegin fólk upplifi óöryggi í strætisvögnum Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Afgerandi niðurstaða um þjóðarmorð og óþreyjufullir foreldar á Nesinu Sósíalistar vilja Sönnu burt en hún kveðst koma af fjöllum Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ „Ég veit ekki hversu hátt þarf að öskra orðið þjóðarmorð“ Vildi kynnast Kristjáni en var ítrekað sagt að „fokka sér“ Stöðugildum á vegum ríkis fjölgaði um rúm 500 á síðasta ári Reikna með gosi í lok mánaðar Rændi bíl í Veiðivötnum og ók undir áhrifum af vettvangi Sjá meira