Ari Edwald: Framhald af áramótaskaupinu 6. janúar 2011 16:32 Ari Edwald segir alla sem til þekkja vita að 365 hafi ávallt gert stórviðburðum á íþróttasviðinu mjög góð skil.
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir tilboð Páls Magnússonar útvarpsstjóra um að kaupa sýningarréttinn að HM í handbolta koma of seint til að hægt sé að taka það alvarlega. „Ég lít frekar á þetta sem framhald af áramótaskaupinu," segir Ari. „Við erum búnir að selja áskriftir á stöðina síðan í haust og allt í fullum gangi. Mótið er að byrja í næstu viku og þegar ég gerði Ríkisútvarpinu tilboð í að kaupa af þeim hluta af HM í fótbolta haustið 2009 tók það fram í maí að ganga frá samningum þar um."Ekki alvöru tilboðAri bendir á að Páll sendi tilboðið á alla fjölmiðla samtímis og það var sent 365. „Hann hugsar þetta ekki sem alvöru tilboð heldur sem eitthvað sprell til þess að reyna að spilla þeirri góðu stemningu sem er að skapast fyrir mótið." Hann segir ennfremur að það viti allir sem til þekkja að 365 hafi ávallt gert stórviðburðum á íþróttasviðinu mjög góð skil. Hann bendir í því sambandi á þá umgjörð sem 365 skapaði um HM í fótbolta 2006. „Við erum auk þess að standa betur að þessu en áður hefur verið gert og sýnum miklu fleiri leiki á mótinu en RÚV hefur getað hingað til."Frekar stytta biðraðir eftir mat Ari bendir einnig á að gerðir hafi verið samningar um kostun og auglýsingar í kringum mótið og því hafi RÚV enga möguleika á því að afla frekari tekna í kringum mótið. „Ef það er þannig að ríkið hafi fundið tugi milljóna króna núna til þess að verja í það að kaup sýningarrétt á handbolta án þess að hafa þar tekjur á móti, þá spyr maður sig hvort það standi velferðarstjórninni ekki nær ef það á peninga aflögu að sjá til þess að fólk fái að borða í landinu. Þessi fjárhæð sem verið er að tala um myndi klárlega duga til þess að stytta þær biðraðir um helming sem verið hafa í höfuðborginni eftir mat síðustu misseri." Hinsvegar segir Ari að RÚV gæti vel tekið upp viðræður við 365 um að kaupa sýningarréttinn að mótinu árið 2013 sem 365 á réttinn að. „Það má skoða það, en í sjálfu sér þyrfti RÚV ekkert að koma að því máli. Ef ríkið vill greiða okkur peninga til þess að minnka kostnað við kaup á þessum réttindum þá er hægt að opna dagskránna hér líka." Það væri einnig eðlilegra út frá samkeppnissjónarmiðum að mati Ara að ríkisstyrkur af þessu tagi væri ekki bundinn við Ríkisútvarpið.Áskrifendur eru ánægðir „Mér finnst það líka stormur í vatnsglasi allt þetta tal um mikla óánægju, því við finnum hana ekki frá fólki sem er að kaupa sér áskrift," segir Ari og bendir á að áskrift að stöðinni í heilan mánuð kostar jafn mikið og miði á einn venjulegan leik á mótinu.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira