Lambakjöt búið að hækka um 25 prósent Hafsteinn Hauksson. skrifar 15. júlí 2011 17:43 Lambakjöt.
Landssamtök sauðfjárbænda hafa hækkað verðskrá sína um 25 prósent frá síðasta ári. Formaður samtakanna fullyrðir þó að ekki sé sjálfgefið að hækkunin hafi áhrif á íslenska neytendur, og bendir á að verðskráin sé ekki bindandi. Landssamtök sauðfjárbænda hafa heimild í búfjárlögum til að gefa út viðmiðunarverð á lambakjöti og öðrum sauðfjárafurðum sem greiðist til bænda, en afurðastöðvar eru ekki skuldbundnar til að fara eftir verðskrá þeirra. Samtökin hækka verðskrána um 25 prósent í dag. Sindri Sigurgeirsson, formaður samtakanna, skýrir þetta sem svo að verðskráin lýsi væntingum bænda til verðsins sem þeir fá greitt fyrir framleiðslu sína. Hann býst við að afurðastöðvar bregðist við hækkuninni. „Ég á nú von á því að þær muni eitthvað hækka verð til bænda, þær hafa gert það nú þegar," segir Sindri, en telur þó ekki að það hafi endilega áhrif á neytendur. „Ef það verður 25 prósentahækkun, þá er ekki nauðsynlegt að það skili sér í verði til neytenda á Íslandi. Við höfum séð það að 40 prósent framleiðslunnar eru að fara á erlendan markað." Sindri segir að verðið á alþjóðamörkuðum hafi hækkað um 130% með falli krónunnar og aukinni eftirspurn erlendis frá ársbyrjun 2008, og þannig hafi skapast svigrúm til að hækka verðið til framleiðenda. Ofan á það leggist miklar hækkanir á framleiðslukostnaði, sem framleiðendur vilja að þeim séu bættar upp. En er viðmiðunarverðskrá af þessu tagi nokkuð annað en bersýnilegt verðsamráð? „Það er þannig að við höfum heimild til að gefa út þetta viðmiðunarverð. Með þessu eru Landssamtök sauðfjárbænda, samtök bænda um allt land, að setja fram sínar væntingar. Það er engum skylt að fara eftir þessu og sláturleyfishafar hafa undanfarin ár ekki borgað viðmiðunarverð," segir Sindri, og bætir við að það sé ósköp eðlilegt í viðskiptum að menn segi hvað þeir vilji fyrir framleiðslu sína.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Sjá meira