Innlent

Hönnuðu boli til að vekja athygli á lágum launum

Rut afhenti Haraldi Freyr bol að gjöf
Rut afhenti Haraldi Freyr bol að gjöf Mynd úr einkasafni
„Bolirnir féllu heldur betur í góðan jarðveg og hafa selst eins og heitar lummur," segir Rut Viktorsdóttir, deildarstjóri á Tröllaborg á Akureyri. Kennarar leikskólans voru ósáttir með laun sín og ákváðu að hanna boli til að vekja athygli á launakjörum sínum.

Á bolunum stendur: „Maður á ekki að fá minni laun fyrir að kenna minna fólki" og var það formaður félags leikskólakennara, Haraldur F. Gíslason, sem kom með slagorðið. Teikningin á bolnum er eftir Atla Þormóðsson, sem er 6 ára nemandi á Tröllaborg.

„Í upphafi kviknaði hugmyndin á kaffistofunni í Tröllaborgum en þar vorum við að velta upp ýmsum hugmyndum um hvernig við gætum vakið athygli á launakjörum okkar," segir Rut og var ákveðið að hanna þessa boli. „Við gerðum ekki ráð fyrir að ágóðinn yrði nokkur og lögðum því starfsmannasjóðinn okkar undir til að láta þennan litla kaffistofudraum rætast," segir Rut. „Eftirspurnin fór fram úr okkar björtustu vonum og þá ákváðum við að bretta upp ermar og vinna svolítið í sumarfríinu okkar, panta fleiri boli með það fyrir augum að láta ágóðann renna í námskynningarferð sem við áætlum að fara eftir tvö ár.

Hægt er að sjá frekari upplýsingar um bolina á Facebook-síðu þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×