Kannabisneysla unglinga hefur minnkað frá 1999 Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. maí 2011 11:05 Kannabisneytandi. Mynd/ Getty.
Neysla 15-16 ára íslenskra unglinga á hassi og maríjúana er svipuð og hún var fyrir sextán árum, samkvæmt niðurstöðum evrópsku vímuefnarannsóknarinnar ESPAD 2011. Árið 1995 höfðu 10% unglinga á þessum aldri prófað kannabisefni en 11% árið 2011. Mest mældist neyslan árið 1999, en þá höfðu 15% prófað kannabisefni. Minnst var hún árið 2007, en þá höfðu um 9% prófað kannabisefni. Um er að ræða nemendur sem höfðu prófað kannabisefni einu sinni eða oftar. Aðgengi 15-16 ára unglinga á hassi og maríjúana mælist nú jafnframt svipað og fyrir sextán árum. Vorið 1995 töldu 41% unglinganna að það væri erfitt eða útilokað fyrir þa að verða sér úti um slík efni ef þau vildu en 11% að það væri mjög auðvelt. Vorið 2011 töldu 42% að það væri erfitt eða útilokað en 12% að það væri mjög auðvelt. Mest mældist aðgengi íslenskra unglinga að kannabisefnum árið 1999 þegar 24% töldu mjög erfitt eða útilokað að verða sér úti um hass eða maríjúana en minnst árið 2007 þegar 44% nemenda í 10. bekk töldu slíkt erfitt eða útilokað. Viðhorf unglinga til skaðsemi kannabisefna hafa mildast nokkuð. Árið 1995 töldu 42% unglinga á aldrinum 15-16 ára mikla hættu á því að fólk skaðaði sig á því að prófa hass eða maríjúana einu sinni eða tvisvar. Nú eru einungis 37% sem telja hættu á því. Könnunin var lögð fyrir alla nemendur í 10. bekk grunnskóla á þessari önn sem nú er að líða undir lok. Svarhlutfall var um 80%.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira