Flug gæti raskast í næstu viku 31. maí 2011 06:00 Vinnustöðvun flugvirkja vofir yfir Icelandair á miðvikudaginn í næstu viku. Fréttablaðið/Vilhelm
Flugvirkjafélag Íslands boðar vinnustöðvun hjá Icelandair eftir viku náist ekki að gera nýjan kjarasamning fyrir þann tíma. Leggja á niður vinnu milli klukkan sex og tíu að morgni dagana 8. til 10. júní. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, myndi vinnustöðvun flugvirkja raska áætlunarflugi Icelandair þá daga. „Við höfum trú á því að það náist saman í þessum viðræðum enda hefur flugvirkjum verið boðinn sambærilegur samningur við það sem aðrar stéttir og landsmenn hafa verið að fá í samningum,“ segir Guðjón. Flugvirkjar segjast jafnvel munu fara í verkfall náist ekki samningar. Það myndi hefjast 20. júní. Í fyrravor höfðu flugvirkjar hafið verkfall á miðnætti þegar sett voru bráðabirgðalög á aðgerðir þeirra undir morgun. Samningur sem gerður var nokkru síðar rann út 31. janúar á þessu ári. Maríus Sigurjónsson, varaformaður Flugvirkjafélagsins, segir ekkert nýtt hafa komið fram í málinu í langan tíma. Flugvirkjar vilji knýja viðsemjendur sína til að ljúka málinu. „Ég trúi því að hjá þeim sem þekkja málið vel sé í raun og veru vilji til að semja. En á meðan svona hlutir fara í gegnum Samtök atvinnulífsins eru þeir erfiðari og þyngri í vöfum.“ - gar
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira