Boðar fjárfestingu upp á hundruð milljarða í orkufrekum iðnaði Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. maí 2011 18:30
Forsætisráðherra boðar fjárfestingar í orkufrekum iðnaði og tengdum virkjanaframkvæmdum upp á þrjú til fjögur hundruð milljarða á næstu þremur til fimm árum. Þá vill hún þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á kvótakerfinu strax næsta haust Forsætisráðherra sagði það stefnu ríkisstjórnarinnar að launþegar, lífeyrisþegar og barnafjölskyldur fengju að nóta lífskjarasóknarinnar sem væri framundan. „Ofurlaunaliðið, fjárglæframennirnir og stóreignaelítan fær ekki að soga til sín hagvöxtinn sem framundan er ef við fáum að ráða. Það er nóg að þjóðin hafi þurft að greiða fyrir síðasta gleðskap þessa fólks. Sú svallveisla var haldinn undir lúðrablæstri frjálhyggjutrúboðs Sjálfstæðisflokksins. Lífskjarasóknin sem framundan er verður hinsvegar á forsendum jafnaðarstefnunar." Forsætisráðherra sagði að ríkisstjórnin ætlaði að hrinda í framkvæmd hagvaxtar- og fjárfestingaráætlun á næstunni sem byggði á tveggja prósenta hagvexti í ár og fjögur til fimm prósent á næstu tveimur árum. „Stefnt er að amk tveimur umfangsmiklum fjárfestingaverkefnum í orkufrekum iðnaði auk þeirra umfangsmiklu framkvæmda sem þegar eru komnar á stað við Búðarhálsvirkjun, álverið í Straumsvík, Kísilverksmiðju í Helguvík, Gagnaver á Suðurnesjum, álverið á Reyðarfirði og víðar. Ég reikna með að nú styttist verulega í að tilkynnt verði um framkvæmdir í tengslum við orkufrekann iðnað á Norðurlandi. Ég er líka orðin mun bjartsýnni en áður, um að Norðurál nái semja við HS orku og Orkuveituna um nægilega orku til að álver þeirra í Helguvík geti orðið að veruleika með tilheyrandi framkvæmdum við Hverahlíðarvirkjun, Reykjanesvirkjun og línulagnir í tengslum við orkufrekann iðnað á Suðurnesjum. Ef ofangreind verkefni ganga öll eftir gætum við því verið að tala um fjárfestingar í orkufrekum iðnaði og tengdum virkjanaframkvæmdum uppá 300-400 milljarða á næstu þremur til fimm árum og sex til sjö þúsund ársverk við uppbygginguna," sagði forsætisráðherra.Fullbúinn aðildarsamningur í lok næsta árs Forsætisráðherra gagnrýndi LÍÚ fyrir ómálefnalegan málflutning í tengslum við kvótakerfið. Hún ítrekaði mikilvægi þess að frumvörpin um fiskveiðistjórnun kæmust á dagskrá á yfirstandandi þingi. „Vel mætti einnig hugsa sér að tillögur stjórnlagaráðs og kerfisbreyting á fiskveiðistjórnunarkerfinu færu saman í þjóðaratkvæðagreiðslu í haust eða næsta vetur. Hvorutveggja eru rísavaxin mál sem engri annarri ríkisstjórn væri treystandi til að leiða til lykta." Forsætisráðherra vék að aðildarviðræðum við Evrópusambandið og sagði að fullbúinn aðildarsamningur gæti legið fyrir í lok næsta árs. „Allt bendir því til að við gætum lokið þessu mikilvæga máli fyrir lok þessa kjörtímabils.Samhliða getum við jafnframt undirbúið okkur fyrir mögulega upptöku Evru, þó kannski líði um þrjú ár frá samþykkt aðildar þar til Evran gæti tekið við sem fullgildur gjaldmiðill þjóðarinnar," sagði forsætisráðherra.
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Sjá meira