Segir af sér og sendir Katrínu harðort bréf 24. nóvember 2011 14:37
Hjörleifur Stefánsson hefur sagt af sér sem formaður Húsafriðunarnefndar. Ástæðu afsagnarinnar segir hann vera ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra um að fara ekki að tillögu Húsafriðunarnefndar um friðun Skálholtskirkju og Skálholtsskóla. Framkvæmdir hafa staðið yfir við Skálholtskirkju undanfarið þar sem verið er að byggja eftirlíkingu af Þorláksbúð en Árni Johnsen þingmaður hefur verið í forsvari fyrir byggingunni og gagnrýndi hann tillögu Húsafriðunarnefndar harðlega. Um leið og Hjörleifur sendi inn afsagnarbréf sitt skrifaði hann Katrínu Jakobsdóttur harðort bréf. Þar segir meðal annars að með ákvörðun sinni um að fara ekki að tillögu nefndarinnar hafi Katrín lýst yfir vantrausti á mat nefndarinnar á gildi bygginganna. Framlengir vist okkar í forheimskunarlandinu„Höfnun þín er rökstudd með því að lagaskilyrði bresti til friðunarinnar skv. 4. mgr. 8. gr. laga nr. 104/2001. Þessi umrædda lagagrein fjallar þó einfaldlega um að „Friða má mannvirki, hús eða húshluta, sem hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Friðun getur náð til nánasta umhverfis friðaðs mannvirkis. ...." Það er hlutverk Húsafriðunarnefndar að leggja mat á menningarsögulegt gildi húsa og nefndin telur umrædd hús hafa þess háttar gildi að brýn ástæða sé til friðunar nú þegar umræddu gildi er ógnað," segir Hjörleifur. „Þú hefur með bréfi þínu hafnað þessu. En jafnframt óskar þú þess að Húsafriðunarnefnd leggi til við þig að húsin verði friðuð. - Það höfum við þegar gert með bréfi dagsettu 16. nóvember sl. og þú hafnað með bréfi 22. nóvember," segir hann einnig og bætir við: „Ekki er auðvelt að skilja hvað að baki býr og engin furða að mann sundli. Ekki kann ég við að segja að um sé að ræða undirlægjuhátt gagnvart vinnufélaga á Alþingi og undanlátssemi við þau venjulegu, ófaglegu og óheiðarlegu vinnubrögð sem viðgangast í þessu samfélagi. Ég er feiminn við að nota þessi orð en þegar litið er yfir feril þessa máls frá upphafi blasir við manni slík runa af óheiðarleika, lygum, prettum og ljótum vinnubrögðum að manni verður orðfall. Ég skil ekki hvernig stjórnmálamaður í þinni stöðu getur tekið svona ákvörðun sem í reynd þýðir aðeins að verið er að festa í sessi það sem ætti að uppræta." Hjörleifur fullyrðir að í upphafi hafi verið byrjað á framkvæmdunum við Skálholt án þess að byggingarleyfi hafi verið fyrir hendi. Þá hafi samþykki Kirkjuráðs verið fengið með blekkingum og sagt ósatt um að byggingarleyfi væri fyrir hendi. Þá hafi einnig verið sagt ósatt um að samþykki höfundarréttarhafa hafi legið fyrir. Ennfremur segir hann að Þorláksbúð hin nýja sé mun stærri en sú sem var og að hönnuður eftirlíkingarinnar hafi ekki til þess réttindi. „Þú framlengir vist okkar í forheimskunarlandinu siðlausa," bætir Hjörleifur við og segir að lokum: „Vonbrigði mín með þessa afgreiðslu eru mikil og ég kýs að draga mig út úr þessu starfi á vegum ráðuneytisins. Ég mæli með því að þú veljir í minn stað mann sem á auðveldara með að starfa innan ramma þeirra leikreglna sem þú setur með starfsmönnum þínum, mann sem skilur hvaða gildismat liggur þar að baki og sættir sig við það."
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira