Ferðamenn geta skráð sig í gagnagrunn utanríksráðuneytisins 6. júní 2011 15:23 Gagnagrunninum er ætlað að auðvelda ráðuneytinu að ná sambandi við þá einstaklinga sem hafa skráð sig, auk þess sem við slíkar aðstæður er hægt að kalla eftir því að Íslendingar sem eru á hættusvæði og hafa ekki þegar skráð sig í grunninn, fari á netið og skrái sig. Mynd Þorgils
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til útlanda eða dvelja erlendis í lengri eða skemmri tíma geta nú skráð upplýsingar þar að lútandi á heimasíðu utanríkisráðuneytisins. Fyrirkomulag þetta er sérstaklega hugsað fyrir þá sem fara til fjarlægari heimshluta eða svæða þar sem af einhverjum ástæðum má ætla að sé viðsjárvert ástand. Upplýsingarnar eru færðar í þar til gerðan gagnagrunn og geymdar á meðan á dvölinni stendur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Ráðuneytið hefur á undanförnum árum ítrekað þurft að virkja neyðaráætlun sína vegna hamfara eða annars hættuástands erlendis. Stór þáttur í því starfi sem þá hefst er að hafa samband við alla íslenska ríkisborgara sem kunna að vera staddir á viðkomandi svæði. Gagnagrunninum er ætlað að auðvelda ráðuneytinu að ná sambandi við þá einstaklinga sem hafa skráð sig, auk þess sem við slíkar aðstæður er hægt að kalla eftir því að Íslendingar sem eru á hættusvæði og hafa ekki þegar skráð sig í grunninn, fari á netið og skrái sig. Er litið svo á að þetta kunni að reynast mikilvægt þar sem við slíkar aðstæður eru gjarnan vandamál með símasamband, en netið virkar. Gagnagrunnurinn telst eign utanríkisráðuneytisins og verða upplýsingar úr grunninum ekki veittar til þriðja aðila nema öryggi þeirra sem skráðir eru í gagnagrunninn krefjist þess. Upplýsingar í grunninum verða aðeins notaðar í öryggisskyni og til að utanríkisráðuneytið eða íslenskt sendiráð geti náð sambandi við viðkomandi. Þeim sem hyggja á ferðalög til víðsjárverðra svæða er sérstaklega bent á að skrá sig en öllum sem vilja láta vita af sér er það velkomið.Ferðamenn geta skráð sig með því að smella hér.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Fleiri fréttir Sannfærð um undanþágur í fiskveiði- og landbúnaðarmálum Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Sjá meira