Tilnefningar til Grímunnar - Lér konungur með 10 tilnefningar 6. júní 2011 19:21 Arnar Jónsson fer með aðalhlutverkið í sýningunni Lér konungur.
Tilnefningar til Grímuverðlauna 2011 í alls 16 flokkum sviðslista voru kunngjörðar í Borgarleikhúsinu í dag að viðstöddum fjölda sviðslistafólks, en alls komu 80 leiklistarverkefni til álita til Grímunnar í ár. Við verkin störfuðu yfir eitt þúsund listamenn, tæknifólk og starfsfólk leikhúsanna. Sýningin Lér konungur fær alls tíu tilnefningar: Sýning ársins, fyrir leikstjórn, leikara í aðal- og aukahlutverkum, tónlist, búninga og lýsingu. Fimm leiksýningar hlutu tilnefningar sem sýning ársins 2011; Allir synir mínir í sviðssetningu Þjóðleikhússins Elsku barn í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins Fjalla-Eyvindur í sviðssetningu leikhópsins Aldrei óstelandi og Norðurpólsins Fólkið í kjallaranum í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins Lér konungur í sviðssetningu Þjóðleikhússins.Fimm barnasýningar hlutu tilnefningar sem barnasýning ársins 2011; Ballið á Bessastöðum í sviðssetningu Þjóðleikhússins Gilitrutt í sviðssetningu Brúðuheima Gói og Eldfærin í sviðssetningu Baunagrassins og Borgarleikhússins Herra Pottur og ungfrú Lok í sviðssetningu Óperartic í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið Hvað býr í pípuhattinum? í sviðsetningu Krílisins.Fimm sýningar hlutu tilnefningu til áhorfendaverðlaunanna 2011, eftir netkosningu hér á Vísi.is; Gói og Eldfærin í sviðssetningu Baunagrassins og Borgarleikhússins, Húmóðirin í sviðssetningu Vesturports og Borgarleikhússins Nei, ráðherra! í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins Rocky Horror í sviðssetningu Leikfélags Akureyrar Strýhærði Pétur í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins. Símakosning um áhorfendaverðlaunin 2011 hefst nokkrum dögum fyrir Grímuhátíðina og eru allir áhugsasamir leikhúsáhorfendur hvattir til að taka þátt og velja sína uppáhalds sýningu. Grímuhátíðin sjálf, árleg uppskeruhátíð sviðslistageirans árið 2011, verður svo haldin í níunda sinn í Borgarleikhúsinu fimmtudaginn 16. júní og í beinni útsendingu á Stöð 2. Á hátíðinni verða jafnframt heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands veitt þeim sviðslistamanni er þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista. Aðalkynnar hátíðarinnar verða leikararnir góðhjörtuðu og bráðskemmtilegu Gunnar Hansson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir, en auk þeirra mun fjöldi íslenskra sviðsstjarna baða sig í kastljósunum. Leikarar, dansarar og aðrir þekktir sviðslistamenn koma fram á hátíðinni, sem árlega er ein sú allra glæsilegasta í menningarlífi landsins.Hægt er að sjá fleiri tilnefningar hér.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira