Í varðhald fyrir að hóta vitnum í hrottafengnu pyntingarmáli Valur Grettisson skrifar 5. janúar 2011 16:19
Karlmaður á Akureyri var úrskurðaður í gæsluvarðhald um áramótin eftir að hann hótaði vitni í þeim tilgangi að hafa áhrif á vitnisburð hans vegna hrottalegs ofbeldismáls sem verður réttað í þann 7. janúar næstkomandi. Þá hafði lögreglan einnig afskipti af manninum eftir að hann gekk í skrokk á sambýliskonu sinni og vinkonu hennar sama kvöld. Í greinagerð Héraðsdóms Norðurlands eystri segir að aðfaranótt 1. janúar hafi lögreglu borist tilkynningar frá sambýlisfólki á tvítugs og þrítugsaldri um að maðurinn hefði viðhaft mjög alvarlegar hótanir gegn þeim. Segir að tilefni þessarar hótana hafi tengst væntanlegum vitnisburði mannsins í dómsmáli sem ákæruvaldið hafi höfðað gegn manninum og fleiri aðilum vegna ætlaðrar líkamsárásar, frelsissviptingar og fjárkúgunar. Fram kemur að lögreglan hafi talið tilefni til að rannsaka hvort að maðurinn hafi að undanförnu ítrekað haft samband við vitnið í því skyni að fá hann til að haga vitnaframburði sínum í dómsmáli þannig að það þjónaði hagsmunum hans. Er á það bent, að lögreglan rannsaki þannig staðhæfingar sambýlisfólksins, um að maðurinn hafi tengst líkamsárás gegn konu vitnisins á síðasta ári, og þá í því skyni að hafa áhrif á vitnisburð í umræddu dómsmáli. Málið sem um ræðir varðar frelsissviptingu ungs manns. Tveir karlmenn og kona tóku hann í gíslingu á Akureyri í ágúst 2009. Maðurinn þurfti að þola pyntingar og að vera laminn með járnröri. Þá eru þremenningarnir sakaðir um að hafa kastað logandi klósettpappír í manninn og hafa með því stofnað öðrum íbúum í fjölbýlishúsi, sem þau voru stödd í, í stórhættu. Einn maður er grunaðir um að hafa haft sig mest frammi en ekki er ljóst hvort það sé umræddur maður. Aðalmeðferð málsins fer fram í lok vikunnar. Maðurinn var úrskurðaður í Hæstarétti í dag í gæsluvarðhald til 7. janúar.
Mest lesið Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent Ekkja hins látna: „Hann var enginn barnaperri“ Innlent Sagði til myndbönd af Matthíasi að berja menn í tálbeituaðgerðum Innlent Heimsótti foreldra Matthíasar: Sagðist sjálfur hafa átt hugmynd að lögmannaskiptum Innlent Móðir um sakborning: „Matthías er blíður og góður“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Fleiri fréttir Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði „Starfsemi sem þarf auðvitað bara að stoppa" Ekkjan, fjársvikahrina og ferðamenn sem hunsa lokanir Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur Nú má heita Snjókaldur en ekki Latína „Það er bara allt á floti hérna alls staðar“ Fjárhús varð öldugangi að bráð Sveinn nýr formaður stjórnar Landspítalans Heimsótti foreldra Matthíasar: Sagðist sjálfur hafa átt hugmynd að lögmannaskiptum Milljónirnar 22 voru enn í hraðbankanum þegar hann fannst Fresta byggingu annarrar heilsugæslu um fimm ár hið minnsta Afsökunarbeiðni Sigríðar Bjarkar skipti sköpum Hunsa rauða ljósið í Reynisfjöru: „Er að setja sig í mjög meðvitaða hættu“ Sagði til myndbönd af Matthíasi að berja menn í tálbeituaðgerðum „Stórsigur fyrir réttlæti“ Þýskur herforingi í heimsókn á Íslandi Mannekla hjá lögreglu engin afsökun fyrir fyrningu mála Skoða hvort hægt sé að beita Ísrael refsiaðgerðum Gufunesmálið, Mannréttindadómstóll Evrópu og Sjálfstæðisflokkur stærstur í borginni Móðir um sakborning: „Matthías er blíður og góður“ Sjálfstæðisflokkurinn aftur orðinn stærstur í borginni Ríkið braut á konu með því að láta mál hennar fyrnast Ekkja hins látna: „Hann var enginn barnaperri“ Sjá meira