Hannes kærir leka tveggja saksóknara 5. janúar 2011 06:30 Lögmaður Hannesar Smárasonar, Gísli Guðni Hall hrl., hefur kært ríkissaksóknara og saksóknara efnahagsbrota hjá RLS fyrir brot á þagnarskyldu hvað varðar upplýsingar um rekstur og viðskipti FL Group.
Hannes Smárason hefur kært Valtý Sigurðsson ríkissaksóknara og Helga Magnús Gunnarsson, saksóknara efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, fyrir brot gegn þagnarskyldu í opinberu starfi. Lögmaður Hannesar lagði kæruna fram í nóvember, eftir að gögn tengd rannsókn efnahagsbrotadeildar á viðskiptum FL Group voru afhent fulltrúa eins af stærri hluthöfum í fyrirtækinu. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er aðdragandi þessa máls með þeim hætti að Helgi Magnús sendi ríkissaksóknara tölvupóst í mars 2010, þess efnis að fulltrúi tiltekins kröfuhafa hefði farið fram á að fá afhent afrit af gögnum sem embætti Skattrannsóknarstjóra hafði aflað með húsleit, meðal annars hjá FL Group. Gögnin hafði embættið sent saksóknara efnahagsbrotadeildar RLS og tengdust þau viðskiptum FL Group með flugfélagið Sterling. Fulltrúinn sem bað um afritið kvaðst álíta að aðgerðir stjórnar og forstjóra FL Group hefðu valdið tilteknum hluthöfum tjóni og íhuguðu þeir að leita réttar síns. Í tölvupóstinum leitaði saksóknari efnahagsbrota óformlegs álits ríkissaksóknara á afhendingu gagnanna. Ríkissaksóknari kvaðst í svari ekki hafa forsendur til að meta málið, en mælti ekki gegn afhendingu að tilteknum atriðum uppfylltum. Saksóknari efnahagsbrota RLS afhenti síðan fulltrúanum gögnin. Upplýsingar úr þeim birtust síðar í fjölmiðlum og kærði lögmaður Hannesar ríkissaksóknara og saksóknara efnahagsbrota í framhaldi af því, hinn fyrrnefnda fyrir samráð um afhendingu gagnanna og hinn síðarnefnda fyrir afhendingu þeirra. Meðal annars er bent á að rík þagnarskylda um rekstur og viðskipti FL Group hafi verið brotin. Vísað er til lagagreina sem kveða á um viðurlög við brotum af þessu tagi sem geta verið allt að þriggja ára fangelsi. Lögmaður Hannesar fór fram á að Valtýr Sigurðsson viki sæti við meðferð málsins. Sá síðarnefndi sendi beiðni þess efnis til dómsmálaráðuneytisins, sem setti Guðjón Ólaf Jónsson hæstaréttarlögmann til að fara með málið á hendur Valtý ríkissaksóknara og Helga Magnúsi saksóknara efnahagsbrotadeildar RLS. jss@frettabladid.is
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira