Innlent

Ákærð fyrir úlpuþjófnað

Valhúsaskóli
Valhúsaskóli Mynd/villi
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært tæplega tvítuga konu fyrir að stela rándýrum úlpum úr fatahengi í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi í nóvember í fyrra.

Konan er sökuð um að hafa í tvígang farið í skólann, stolið fyrst fimm úlpum og síðan einni. Í seinna skiptið var þrítug kona með í för og er hún ákærð fyrir hlutdeild í brotinu.

Þá brugðust börn í skólanum skjótt við og hlupu þá yngri uppi.

Hún er einnig ákærð fyrir að hafa kýlt aðra konu á Café Oliver og að aka undir áhrifum og ökuréttindalaus. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×