Innlent

Rúm 36% treysta Jóhönnu best sem formanni

Liðlega 36 prósent Samfylkingarmanna treysta Jóhönnu Sigurðardóttur best til að gegna formennsku flokksins og rúmlega 28 prósent Guðbjarti Hannessyni, heilbrigðisráðherra.

Mun fleiri treysta Guðbjarti en Degi. B Eggertssyni, varaformanni flokksins, sem nýtur liðlega 17 prósenta trausts í leiðtogasætið, samkvæmt skoðanakönnun Viðskiptablaðsins.

Þegar fólk, óháð stjórnmálaskoðununum var spurt, náði Guðbjartur Hannesson afgerandi forystu með rösk 38 prósent, Dagur B. Eggertsson var í öðru sæti með rúm 25 prósent og Jóhanna Sigurðardóttir með tæp 15 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×