Innlent

Bílasali dæmdur fyrir fjársvik

Einn karlmaður var sakfelldur fyrir fjársvik og annar sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mönnunum var gefið að sök að hafa rifið varahluti úr bílum í eigu fjármagnsfyrirtækjanna Avant og Lýsingar, en voru í vörslu bílasölu, sem var í eigu mannanna. Sá sem var dæmdur starfaði sem framkvæmdastjóri bílasölunnar.

Mennirnir neituðu sök. En við yfirheyrslu hjá lögreglu gengust þeir hins vegar báðir við þeirri háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru. Þeir hurfu frá þeim framburði fyrir dóminum og hafa hafnað því að hafa rifið eða látið rífa bifreiðarnar niður og selt eða ráðstafað úr þeim varahlutum.

Gegn eindreginni neitun annars mannsins þótti rétt að sýkna hann af ákærunni.

Sá sem var dæmdur sagðist hafa lánað mönnum bifreiðarnar sem varahlutirnir voru rifnir úr. Hann sagðist þó ekki geta greint frá því hverjum hann lánaði bílana.  Hann sagði ennfremur að bílarnir hefðu verið lánaðir áfram og týnst, eða þær „farið á flakk“ eins og hann orðaði það sjálfur.

Dómaranum þótti útskýringar mannsins óljósar.

Maðurinn var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Þá er honum gert að endurgreiða fjármögnunarfyrirtækjunum um níu milljónir króna samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×