Innlent

Dregið úr neyslu ofvirknilyfja fullorðinna

Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Eftir stöðuga aukningu á notkun metýlfenidat-lyfja, það er að segja ofvirknilyfja, frá árinu 2006, einkum meðal fullorðinna, hefur tekist að snúa þróuninni við með markvissum aðgerðum heilbrigðisyfirvalda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðaráðuneytinu.

Mest hefur dregið úr ávísunum þessara lyfja til fólks 20 ára og eldra, en einnig hefur dregið úr þeim til einstaklinga yngri en 20 ára, sérstaklega hjá börnum á aldrinum 10–14 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×