Eldaði fingurinn með grænmeti og borðaði hann Hafsteinn Hauksson skrifar 16. apríl 2011 14:00
Þunglyndur tuttugu og átta ára maður á Nýja Sjálandi skar af sér fingur, eldaði hann með grænmeti og át hann í sjaldgæfu tilfelli af sjálfsáti. Greint er frá tilfellinu í sálfræðitímaritinu Australasian Psychiatry, en þar kemur fram að maðurinn hafi hvorki verið undir áhrifum áfengis né fíkniefna þegar hann framdi verknaðinn. Í greininni segir að maðurinn hafi gengið í gegnum erfitt þunglyndi eftir persónulegt áfall og glímt við alvarlegt svefnleysi og sjálfsvígshugsanir. Til þess að losna við þessar hugsanir hafi hann svo gripið til þess ráðs að binda skóreim þétt um litla fingurinn á sér og saga hann svo af sér með rafmagnssög. Því næst eldaði maðurinn fingurinn á pönnu með grænmeti og át af honum kjötið. Maðurinn hafði í hyggju að skera af sér tvo fingur í viðbót og borða þá, en hlaut viðeigandi aðstoð áður en til þess kom. Í frétt AFP af málinu kemur fram að sjálfsát sé afar sjaldgæft, og aðeins sé vitað um átta sjálfsátstilvik í heiminum. Í greininni kemur fram að maðurinn hafi hótað að borða sjálfan sig áður í viðtölum við heilbrigðisstarfsfólk, en þar sem maðurinn þótti hvorki ofbeldisfullur né sýndi nein merki sturlunar, hafi það ekki verið tekið alvarlega. Því megi vera að hann hafi fyrst fengið þá umönnun sem hann vildi eftir að hann hafi látið verða af sjálfsátinu.
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira