Á að hafa afleiðingar ef þau standa ekki við gefin loforð 16. apríl 2011 13:25 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á fundinum í morgun
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á fundi í Valhöll í morgun með félagsmönnum, að það eigi að hafa afleiðingar fyrir fjármálafyrirtækin ef þau standa ekki við gefin loforð um að koma atvinnulífinu til hjálpar og endurskipuleggja skuldir fyrirtækjanna. „Við komum ekki nýju fjármálakerfi á fót til þess að það gæti haldið atvinnulífinu í gíslingu," sagði Bjarni. Hann sagði að ekki eigi að viðurkenna lán í langtímavanskilum sem hefðbundna eign sem eitthvert mark væri takandi á. Slík lán væru falseignir í reikningum bankanna. Lítil og meðalstór fyrirtæki glímdu við mikinn vanda sem yrði að lesa. „Þeir hagsmunir sem undir eru réttlæta grimmar aðgerðir gagnvart fjármálafyrirtækjunum til þess að koma hagkerfinu af stað." Þá sagði hann að áætlanir fjármálafyrirtækjanna miðuðu að því að þau fengju allt sitt, með aukinni vinnu þeirra sem reka fyrirtækin, en alla hvata vantaði fyrir fyrirtækin að vinna sig út úr vandanum. Bankarnir ætluðust til að fyrirtæki stæðu undir 100% skuldsetningu. Fyrirtæki í þeirri stöðu gæti ekki fjárfest í nýjum tækjum til að auka framleiðni né ráðið til sín fólk, til þess vantaði alla hvatningu og getu. „Það verður að brjóta nýjar leiðir, að brjóta þau klakabönd af atvinnulífinu sem það er fast í, vegna aðgerðaleysis stjórnvalda og óbilgirni fjármálafyrirtækjanna," sagði Bjarni. Bjarni sagðist fagna fimmtán ára áætlun Landsvirkjunar sem kynnt hefði verið í gær. „En þar er settur sá fyrirvari, að menn yrðu að vera tilbúnir til að nýta tækifærin, að vera tilbúnir að nýta virkjunarkostina, ekki bara horfa á þá." Það væri ánægjulegt að hefja ætti vinnu við Búðarhálsvirkjun en hann sagði óskiljanlegt að menn skyldu ekki horfa til Norðlingaölduveitu, sem væri upplagður virkjunarkostur. „Þangað hefði verið hægt að sækja orku með 10 milljarða minni tilkostnaði en á Búðarhálsi."
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira