Betra að taka ákvarðanir þegar andað er með nefinu en öskrandi Hugrún Halldórsdóttir skrifar 16. apríl 2011 12:46 Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, gagnrýnir vinnubrögð Samtaka atvinnulífsins og segir að forsvarsmenn samtakana hafa algjörlega komið mönnum í opna skjöldu með kröfum sínum á fundinum í Karphúsinu í gær. „Um miðjan daginn í gær þá höfnuðu SA að skrifa undir langa samninginn og vildu bara skrifa undir skammtímasamninginn en lögðu síðan ofan á hann pólitíska yfirlýsingu sem er einfaldlega ólöglegt að láta fylgja með," segir hann. En hvað tekur núna við? „Mönnum var nú orðið það heitt í hamsi þarna í gærkvöldi og það var ákveðið að það væri betra að taka ákvarðanir þegar maður andar með nefinu heldur en öskrandi og menn ákváðu að fara heim. Það er vonandi að SA menn fari niður í Karphús, hann liggur á borðinu hjá sáttasemjara þessi samningur og taki þessa yfirlýsingu ofan af honum. Það liggur penni ofan á samningnum hjá sáttasemjara og það er ekkert mál að skreppa niður eftir og skrifa undir þetta," segir hann. Ef ekki verður skrifað undir segir Guðmundur stéttarfélögin fara í það hvert fyrir sig að vísa sínum deilum til sáttasemjara, sem væri fyrsta skrefið til þess að koma málum í þann farveg að geta farið að slást af hörku. Hann segir þetta verstu leiðina sem mun leiða til þess að ákveðnir hópar, sem eru í þannig stöðu að geti slegið frá sér, munu ná fram launahækkunum en stóru hóparnir, og þá sérstaklega þeir láglaunuðustu, munu fara langverst út úr þessu.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira