Hrottalegur handrukkari í Outlaws úrskurðaður í gæsluvarðhald 29. nóvember 2011 18:01
Maðurinn sem var handtekinn í skotárásarmálinu, og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, hefur margsinnis komist í kast við lögin vegna hrottalegra handrukkana. Meðal annars var hann í slagtogi við mann sem klippti fingur af öðrum manni árið 2007. Sjálfur var hann dæmdur fyrir að lemja manninn með hafnaboltakylfu í sömu árás. Maðurinn er meðlimur í vélhjólagenginu Outlaws, sem áður kallaðist Black Pistons, að sögn lögreglunnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær þrjá einstaklinga í tengslum við rannsókn á skotárás í Bryggjuhverfinu fyrr í mánuðinum og lögðu hald á stærsta vopnasafn sem lögreglan hefur lagt hald á. Meðal annars fann lögreglan í fyrsta skiptið skothelt vesti í fórum meintra glæpamanna. Tveimur hefur nú verið sleppt en karlmaður, fæddur árið 1980, og er meðlimur í Outlaws, var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna skotárásarinnar í dag. Nú hafa tveir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins og annar maður hafið afplánun á öðrum dómi. Vélhjólamaðurinn var dæmdur á síðasta ári fyrir að svipta mann frelsinu og fara með hann upp í Heiðmörk ásamt þremur öðrum mönnum. Þar var fórnarlambinu misþyrmt hrottalega, meðal annars með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði. Svo var hann skilinn eftir í blóði sínu. Ástæðan var fíkniefnaskuld. Samkvæmt heimildum Vísis hugðust mennirnir einnig handrukka fórnarlambið vegna fíkniefnaskuldar í þetta skiptið. Skotárásin er rannsökuð sem morðtilraun samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.
Mest lesið Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira