Lækkun tryggingagjalds forsenda fyrir hækkun lágmarkslauna 5. apríl 2011 12:18 MYND/Pjetur
Lækkun tryggingagjalds er forsenda þess að Samtök atvinnulífsins fallist á hækkun lágmarkslauna að kröfu Alþýðusambandsins. Kjarasamningar til þriggja ára eins og stefnt er að verða ekki að veruleika felli þjóðin Icesave samningana í atkvæðagreiðslunni á laugardag. Það munaði hársbreidd að slitnaði upp úr kjaraviðræðum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins í gærkvöldi vegna kröfu Alþýðusambandsins um hækkun lægstu launa á þriggja ára samningstíma upp í 200 þúsund krónur, en þau eru nú 165 þúsund. Hækkunin nemur um 21 prósenti en samkvæmt heimildum fréttastofunnar er einnig gert ráð fyrir að almennar launahækkanir verði á bilinu ellefu til tólf prósent. Nú kynna einstök landssambönd ASÍ niðurstöður viðræðnanna í gær fyrir félagsmönnum sínum og Samtök Atvinnulífsins kynna stöðuna fyrir sínum aðildarfélögum. Tryggingagjald sem stendur undir atvinnuleysistryggingarsjóði var hækkað verulega fyrir tveimur árum til að standa undir auknu atvinnuleysi. Ein forsenda þess að Samtök atvinnulífsins fallist á umtalsvera hækkun lægstu launa er að gjaldið verði aftur lækkað í áföngum. Í viðræðunum hefur verið lögð áhersla á að ná langtíma samningi, eða til þriggja ára, sem héldist í hendur við atvinnuuppbyggingu. Næst komandi laugardag greiðir þjóðin atkvæði um Icesave samkomulagið. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar gæti haft áhrif á samningana.
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira