Bæjarstjórinn í Eyjum: Erum vön að passa okkur á sjónum 5. apríl 2011 20:09 Mynd/Óskar P. Friðriksson „
Við erum að leita allra leiða til þess að byrja að nýta höfnina aftur. Nú er dýpið að verða nokkuð ásættanlegt en Herjólfur ristir hins vegar meira en æskilegt er," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, en rætt var við hann í Kastljósi í kvöld. Líkt og fram kom á Vísi fyrr í dag hefur Elliði ritað Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, og Hermanni Guðjónssyni, siglingamálastjóra, bréf þar sem farið er fram á að sérleyfi Herjólfs um siglingar í Landeyjahöfn verði aflétt þannig að smærri skipum verði gefinn kostur á að sigla með farþega milli Landeyjahafnar og Eyja. í bréfinu bendir Elliði á að siglingar í Landeyjahöfn hafa legið niðri frá áramótum og enn virðist sem nokkur dráttur verði á að dýpi við höfnina verði nægjanlegt fyrir Herjólf. Siglingastofnun segir aftur á móti að með tilliti til öryggissjónarmiða og veðurfars geti stofnunin ekki fallist á opna Landeyjahöfn fyrir farþegasiglingum annarra skipa en Herjólfs. Alþjóðareglur heimila ekki slíkt. Elliði segir Siglingastofnun vera að sinna sínu hlutverki samkvæmt lögum en bætir við: „Ég bendi á að við erum búin að gera út frá Vestmannaeyjum seinustu þúsund árin og það er ekkert nýtt fyrir okkur að þurfa að passa okkur á sjónum. Við vorum ekki að vísa í nein ákveðin skip. Það eru víða til skip og bátar sem geta notað Landeyjahöfn."
Tengdar fréttir Vill að sérleyfi Herjólfs í Landeyjahöfn verði aflétt Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ritað innanríkisráðherra og siglingamálastjóra bréf þar sem hann óskar eftir því að sérleyfi Herjólfs til siglinga í Landeyjahöfn verði þegar aflétt og öðrum bátum og skipum með leyfi til farþegaflutninga heimilað að nýta Landeyjahöfn. Elliði bendir á að siglingar í Landeyjahöfn hafa legið niðri frá áramótum og enn virðist sem nokkur dráttur verði á að dýpi við höfnina verði nægjanlegt fyrir Herjólf. Ekkert sé hins vegar sem hindri að skip sem rista minna en Herjólfur noti höfnina. Að sögn Elliða hefur samfélagið í Vestmannaeyjum orðið fyrir miklum skaða vegna vegna vandamála sem komið hafa upp við Landeyjahöfn og ber hann því fram ósk sína með sérstöku tilliti til þess að háannatími í ferðaþjónustunni nálgast. 5. apríl 2011 09:59 Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira
Vill að sérleyfi Herjólfs í Landeyjahöfn verði aflétt Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ritað innanríkisráðherra og siglingamálastjóra bréf þar sem hann óskar eftir því að sérleyfi Herjólfs til siglinga í Landeyjahöfn verði þegar aflétt og öðrum bátum og skipum með leyfi til farþegaflutninga heimilað að nýta Landeyjahöfn. Elliði bendir á að siglingar í Landeyjahöfn hafa legið niðri frá áramótum og enn virðist sem nokkur dráttur verði á að dýpi við höfnina verði nægjanlegt fyrir Herjólf. Ekkert sé hins vegar sem hindri að skip sem rista minna en Herjólfur noti höfnina. Að sögn Elliða hefur samfélagið í Vestmannaeyjum orðið fyrir miklum skaða vegna vegna vandamála sem komið hafa upp við Landeyjahöfn og ber hann því fram ósk sína með sérstöku tilliti til þess að háannatími í ferðaþjónustunni nálgast. 5. apríl 2011 09:59