Lífið

Fjör á Októberfest á Kexinu

Skemmtu sér vel Frá vinstri: Leikararnir Atli Rafn Sigurðarson, Björn Hlynur, Walter Grímsson og Vignir Rafn ásamt Tinnu Dögg, kærustu Atla Rafns, voru hress á Kex Hostel.fréttablaðið/Stefán
Skemmtu sér vel Frá vinstri: Leikararnir Atli Rafn Sigurðarson, Björn Hlynur, Walter Grímsson og Vignir Rafn ásamt Tinnu Dögg, kærustu Atla Rafns, voru hress á Kex Hostel.fréttablaðið/Stefán
Þýskur andi sveif yfir Kex Hostel á þriðjudaginn þegar Októberfest hófst þar með pompi og prakt. Bjórinn flæddi í sérstökum Kex-bjórkrúsum sem sumir gestanna áttu erfitt með að lofta enda tóku þær einn lítra af bjór. Klæðnaður barþjónanna á Kex var við hæfi, en strákarnir voru í hnésíðum smekkbuxum og stúlkurnar í sérhönnuðum kjólum.

Hátíðin stendur til 9. október, en stórt tjald hefur verið sett yfir portið þar sem gestir láta fara vel um sig á langborðum. Fótboltakappinn fyrrverandi Ásgeir Sigurvinsson opnaði partíið með því að drekka fyrsta bjórinn, en hann spilaði fótbolta í Þýskalandi við góðan orðstír.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.