Innlent

Loka barnaníðssíðum í kjölfar ábendinga

Lögreglan hvetur foreldra til að fylgjast með netnotkun barna sinna, meðal annars til þess að koma í veg fyrir að þau sendi upplýsingar um sig til óprúttinna aðila.Nordicphotos/afp
Lögreglan hvetur foreldra til að fylgjast með netnotkun barna sinna, meðal annars til þess að koma í veg fyrir að þau sendi upplýsingar um sig til óprúttinna aðila.Nordicphotos/afp
Nær öllum vefsíðum sem tilkynntar hafa verið til Samtakanna Barnaheillar og innihalda kynferðisofbeldi gegn börnum hefur verið lokað með samstarfi embættis ríkislögreglustjóra og erlendra lögregluembætta.

Þetta segir Hjálmar Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra. Í fyrradag var tekinn í notkun endurbættur ábendingahnappur hjá Barnaheill, þar sem almenningur getur tilkynnt um vefsíður sem hugsanlega innihalda barnaníð. Vefslóðin inn á hnappinn er www.barnaheill.is.

„Ábending sem berst Barnaheill berst sjálfkrafa til embættisins,“ útskýrir Hjálmar ferli máls. „Viðkomandi vefslóð er skoðuð og athugað hvað sé í raun og veru á bak við hana. Stundum er innihaldið augljóst þegar í upphafi, en stundum þarf að kafa inn í vefsíðuna til að sjá hvað er þar í gangi. Ef reynist vera um að ræða kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum er leitað eftir því hvaðan síðan er upprunnin. Sem betur fer reynast síðurnar í öllum tilvikum vera vistaðar erlendis. Þá er haft samband við viðkomandi lögregluyfirvöld í gegnum Interpol og þau taka þá málið yfir og gera sínar ráðstafanir.“

Spurður hversu miklum árangri ábendingahnappurinn skili þegar upp er staðið segir Hjálmar að í 99 prósentum tilvika sé vefsíðum með ólöglegu efni lokað. Stundum sé þegar búið að loka þessum síðum þegar íslenska lögreglan geri starfsbræðrum sínum erlendis viðvart, því þá hafi aðrir orðið fyrri til og gert viðvart um þær.

„Ísland hefur sem betur fer verið hreint hvað þetta varðar fram til þessa. Embættið hefir sérstaklega litið til þess hvort einhver hér heima sé að vista slíka síðu en það hefur ekki reynst vera. Ella yrði mál af því tagi sent viðkomandi lögregluembætti til frekari rannsóknar.“

Hjálmar segir ekki framhjá því litið að allstór hópur fólks í heiminum selji aðgang að lokuðum vefsíðum sem innihalda barnaníð eða illa fengnar myndir af börnum.

„Það er því nauðsynlegt að foreldrar og forráðamenn barna séu á varðbergi og vel meðvitaðir um hvað þau eru að gera á netinu, þar á meðal hvort reynt sé að lokka þau til að senda einhverjum upplýsingar um sig og myndir af sér.“

Hjálmar undirstrikar að ábendingarnar hafi fyrst og fremst skilað því að aðgengi fólks að þessum markaði sé lokað, auk þess sem þær hafi ríkt forvarnargildi.

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×