Umsagnir stöðva ekki sameiningarnar í bili 7. apríl 2011 07:00 Mikill meirihluti umsagna er neikvæður í garð fyrirhugaðra breytinga í skólamálum. Minnihlutinn vill staldra við en meirihlutinn segir málið í góðu ferli. Fréttablaðið/Heiða
Mikill meirihluti af umsögnum sem borgaryfirvöldum barst vegna fyrirhugaðra breytinga í skólakerfi Reykjavíkur er neikvæður gagnvart framkomnum hugmyndum. Umsagnirnar voru til umræðu á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og var tillögu minnihlutans um að draga tillögurnar til baka vísað frá. Fulltrúar meirihlutans sögðu verkefnið vera „í góðu ferli“ og umsagnirnar yrðu nú ræddar í íþrótta- og tómstundaráði og menntaráði. Í upphafi mars óskaði borgarráð eftir umsögnum frá skólaráðum, foreldrafélögum, hverfisráðum, fagaðilum, ungmennaráðum og fræðasamfélaginu varðandi þær 23 tillögur sem kynntar voru. Umsagnir skólaráða lúta flestar að meintri óvissu varðandi faglegan og fjárhagslegan ávinning af sameiningum grunnskóla, sem er jafnan talinn óásættanlegur í ljósi þess rasks sem breytingarnar munu hafa á skólastarf. Þá er víða minnst á skort á langtímayfirsýn. Umsagnir foreldrafélaga í leikskólum eru flestar afdráttarlausar gegn sameiningartillögum. Í umsögn samtaka starfsfólks og stjórnenda í leikskólum og grunnskólum var skorað á borgaryfirvöld að draga tillögurnar til baka og það sama var í umsögn frá starfsfólki frístundaheimila. Loks má nefna umsögn mennta- og menningarmálaráðuneytisins þar sem mælst er til þess að litið sé til lengri tíma. Hægt sé að skilgreina tilraunaverkefni og meta árangur út frá þeim. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í menntaráði, segir í samtali við Fréttablaðið að þótt umsagnirnar séu að mestu leyti mjög neikvæðar, megi greina þar skilning á því að hagræða þurfi. „Okkur finnst nú vera komið gott tækifæri til að staldra við og vinna málið með hverfunum og foreldrunum. Það er ekki víst að þessi hagræðing skili sér ef fólk er ósátt við breytingar. Fólkið hefur látið sína skoðun í ljós og við í borgarstjórn eigum að sýna að við erum að hlusta. Það fælist hugrekki í því að byrja nú upp á nýtt.“ S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra, sagði í samtali við Fréttablaðið að meirihlutinn myndi ekki tjá sig um umsagnirnar, en málið væri í ferli og niðurstaðna væri að vænta fljótlega. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira