Banki "hrekkir" Guðmund á Núpum: Þarf að greiða 87 milljónir Valur Grettisson skrifar 7. apríl 2011 13:55 Landsbankinn.
Guðmundur A. Birgisson, yfirleitt kenndur við Núpa, var í dag dæmdur til þess að greiða Nýja Landsbankanum 87 milljónir sem hann hafði fengið að láni frá bankanum. Um var að ræða viðskiptasamning um reikningslánalínu sem var gerður árið 2007 en alls fékk hann 95 milljónir lánaðar. Guðmundur átti að greiða lánið í október 2008 en vanskil urðu hjá Guðmundi þannig lánið féll í gjalddaga. Guðmundur vildi meina að hann væri ekki aðili að málinu í ljósi þess að vafi leiki á hvort nýi eða gamli Landsbankinn sæki kröfuna. Orðrétt segir í vörn Guðmunds: „NBI hf. og Landsbanki Íslands hf. eru tvær skepnur skiptar úr einni. Þannig á stefnandi þessa máls ekkert erindi að þessu leyti við stefnda, heldur við Landsbanka Íslands hf., og þetta eiga afkvæmin tvö að útkljá sín í milli, en vera ekki að hrekkja stefnda að svo stöddu og umfram það, sem þegar er orðið." Þess má geta að Landsbankinn sækir fjögur önnur dómsmál gegn Guðmundi. Héraðsdómur Reykjavíkur fellst ekki á aðildarskort Guðmundar og dæmir hann því til þess að greiða lánið. Orðrétt segir í niðurstöðu dómsins: „Stefndi hefur ekki greitt lán þetta svo sem honum ber að gera. Aðrar þær málsástæður er stefndi byggir á í greinargerð sinni eru með öllu vanreifaðar." Guðmundur A. Birgisson er meðal annars stjórnarmaður í Sonja Zorrilla Foundation.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira