Sunneva og Snorri Páll sýknuð Valur Grettisson skrifar 7. apríl 2011 13:14 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Þau Sunneva Ása Weisshappel og Snorri Páll Jónsson voru sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en þau voru ákærð fyrir að óhlýðnast tilmælum lögreglunnar og svo átti Snorri að hafa hrækt á lögreglumann. Atvikið átti sér stað í maí 2009. Í skýrslu lögreglu kom fram að ástæða afskiptanna hafi verið sú að Snorri hafi hrækt tvisvar á bifreiðina sem lögreglumennirnir óku niður Laugaveginn. Hafi þeir viljað ræða við Snorra, fá upp gefið nafn hans og biðja hann um skýringar á þessari háttsemi. Þá hafi verið ætlunin að kanna ástand Snorra, en hann hafi verið sjáanlega ölvaður samkvæmt lögregluskýrslunni. Hafi annar lögreglumannanna tekið í hönd Snorra og leitt hann í átt að lögreglubifreiðinni. Sunneva átti þá að hafa brugðist illa við og reynt að draga Snorra á brott. Hún hafi ekki sinnt fyrirmælum lögreglumannanna um að láta af því, en reynt að ryðja þeim frá. Þá hafi verið tekin ákvörðun um að handtaka þau bæði. Þau voru síðan færð í lögreglubifreiðina og ekið í átt að lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Eftir að inn í bifreiðina kom átti Snorri að hafa hrækt í andlit þess lögreglumanns, sem sat við hlið hans í bifreiðinni. Bæði neituðu þau alfarið sök. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að við aðalmeðferð málsins hafi komið fram að atvikið átti sér stað í húsasundi og á gangstétt framan við Laugaveg 64 og 66, en ekki við hús nr. 76, eins og fram kom í frumskýrslu lögreglu. Þá var verknaðarlýsingu Sunnevu ábótavant og fyrir vikið var hún sýknuð. Þá var Snorri sýknaður af því að hafa hrækt á lögreglumanninn vegna eindreginnar neitunar hans og Sunnevu. Snorri Páll Jónsson var einn níumenninganna sem ákærðir voru fyrir árás á Alþingi og síðar sýknuð.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira