Kynferðisafbrot fararstjórans misfórst hjá félagsþjónustunni Valur Grettisson skrifar 7. apríl 2011 14:37 Myndin er sviðsett og úr safni.
Fararstjórinn sem var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita 16 ára stúlku kynferðislega, hafði áður beitt hana kynferðislegri misneytingu. Þá var málið tilkynnt til félagsyfirvalda bæjarfélagsins en samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hlaut kæran ekki frekari framgang vegna misskilnings starfsmanna félagsþjónustunnar. Vísir greindi frá því fyrr í dag að fararstjórinn hefði verið dæmdur fyrir kynferðislega áreitni gagnvart stúlkunni í íþróttaferð erlendis árið 2007. Maðurinn var fararstjóri í ferðinni og bar ábyrgð á ungmennunum. Eftir að hafa drukkið bjór með ungmennunum lögðust fararstjórinn og stúlkan saman á dýnu í íþróttahúsi þar sem þau dvöldu. Þar káfaði maðurinn á stúlkunni innanklæða. Svo kemur fram í dóminum að í janúar 2008 áreitti maðurinn stúlkuna aftur. Þá voru þau stödd í samkvæmi og orðið tvö ein eftir í húsinu eftir að samkvæminu lauk. Fararstjórinn leitaði þá á hana, þrýsti henni upp að vegg og byrjað að kyssa hana. Hann kastaði henni upp í rúm, afklæddi þau bæði, lá ofan á henni og káfaði á henni eins og í fyrra skiptið. Hann á síðan spurt hana hvort hún væri „hrein mey" og hún svarað því játandi. Hann klæddi sig þá og fór. Stúlkan átti erfitt með að segja frá þessum atvikum, ekki síst þar sem um var að ræða mann sem hún þekkti og leit upp til. Lýsingar hennar á atburðum voru trúverðugar í alla staði að mati dómsins. Hún hafi lýst lamandi varnarleysi þegar fararstjórinn kom vilja sínum fram án samþykkis hennar, doða, miklum kvíða og almennri vansæld. Í kjölfarið hafi hún fundið til mikillar reiði. Stúlkan hefur átt erfitt með samskipti við karlmenn eftir að kynferðisbrotin áttu sér stað og sé svo enn. Líðan hennar hafi hins vegar farið batnandi eftir að hún gerði grein fyrir þessum brotum og kærði til lögreglu. Málið var hinsvegar tilkynnt fyrst til félagsþjónustunnar. Í vottorði frá stofnuninni kemur fram að kæran hafi ekki hlotið frekari framgang. Í bréfi félagsmálastjóra til lögreglu kemur fram að misskilningi starfsmanna félagsþjónustunnar væri að kenna um það að málið var ekki kært til lögreglu á sínum tíma. Þar af leiðandi snéru foreldrar stúlkunnar sér til lögreglunnar sem hóf rannsókn. Þess má geta að eitt vitnið, sem var með stúlkuna hjá sér í viðtölum vegna sértækra námsörðugleika og erfiðleika tengdum þeim, tilkynnti um málið til félagsyfirvalda árið 2008. Að auki fylgdi vitnið því vel á eftir. Erindinu var hinsvegar ekki sinnt. Lýsir vitnið því að stúlkunni hafi liðið mjög illa vegna skeytingaleysis félagsstofnunarinnar og ekki liðið betur fyrr en það var formlega kært til lögreglunnar. Ekki kemur fram í dómnum hvaða bæjarfélag sé um að ræða. Eins og fyrr segir var maðurinn dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Meðal ástæðna fyrir því að dómurinn var skilorðsbundinn var vegna þess hversu langt var um liðið síðan brotin voru framin. Honum er einnig gert að greiða stúlkunni 400 þúsund krónur í miskabætur.
Tengdar fréttir Fararstjóri dæmdur fyrir að káfa á unglingsstúlku Fararstjóri var dæmdur í hálfs árs fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára fyrir kynferðislega áreitni gagnvart 16 ára íþróttastúlku. Atvikið átti sér stað erlendis í ágúst árið 2007. 7. apríl 2011 12:11 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Fleiri fréttir Fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Sjá meira
Fararstjóri dæmdur fyrir að káfa á unglingsstúlku Fararstjóri var dæmdur í hálfs árs fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára fyrir kynferðislega áreitni gagnvart 16 ára íþróttastúlku. Atvikið átti sér stað erlendis í ágúst árið 2007. 7. apríl 2011 12:11