Á annan tug innherjasvikamála til rannsóknar 7. apríl 2011 18:59
Á annan tug innherjasvikamála eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Brot Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, eru stórfelld að mati Héraðsdóms, en hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik þegar fyrsti dómurinn í málum sérstaks saksóknara féll í dag. Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, var dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi fyrir að selja hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir 192 milljónir króna rétt fyrir hrun eftir að hafa setið fundi sérstakrar nefndar um fjármálastöðugleika þar sem ræddar voru trúnaðarupplýsingar um stöðu bankans og fjármálakerfisins alls. Á fundunum voru rædd þau áform stjórnvalda að bjarga innistæðueigendum, en ekki hluthöfum bankanna. Fjöldi vitna kom fyrir dóminn, eins og Bolli Þór Bollason sem sat sömu fundi og Baldur og taldi sér ekki heimilt að selja bréf sín í bönkunum vegna þeirrar vitneskju sem hann bjó yfir. Ákæruvaldið fór fram á tvö ár, en refsiramminn býður upp á sex ára fangelsi ef sakir eru miklar. Í dómsorði Héraðsdóms segir: „Ákærði hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Brot ákærða eru stórfelld og brotaandlag hátt. Með broti sínu misnotaði ákærði stöðu sína sem opinber starfsmaður." Ekki hefur náðst í Karl Axelsson, verjanda Baldurs í dag. Dómnum verður áfrýjað en málið er í raun einstakt, því dæmi í íslenskri réttarsögu um sambærileg brot, þ.e innherjasvik, eru ekki mörg. Niðurstaða Hæstaréttar mun því veita mikilvæga leiðsögn, en sérstakur saksóknari segir að á annan tug innherjasvikamála séu nú til rannsóknar hjá embættinu. Búast má við að a.m.k einn dómari Hæstaréttar verði vanhæfur til að fjalla um mál Baldurs, Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari, en hann og Baldur ráku saman lögmannsstofu árum saman. Náinn kunningsskapur er talinn nægja sem vanhæfisástæða að mati sérfræðinga í hæfisreglum, en í Hæstarétti sitja þó fleiri sem sennnilega þyrftu að skoða hæfi sitt, gamlir skólabræður og kunningjar úr stéttinni.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Sjá meira