Fylgishrun kemur formanni VG ekki á óvart 7. apríl 2011 18:46
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að fylgishrun ríkisstjórnarflokkanna komi ekki á óvart. Hann segir að niðurstaðan í Icesave muni ekki hafa áhrif ríkisstjórnarsamstarfið. Ríkisstjórnarflokkarnir bíða afhroð í könnun sem MMR gerði fyrir Stöð 2 dagana 4.-6. apríl. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkana er minna en fylgi Sjálfstæðisflokks en aðeins þriðjungur kjósenda styður ríkisstjórnina. Framsóknarmenn bæta við sig miklu fylgi og eru samkvæmt könnunni með nánast jafn mikið fylgi og Samfylkingin. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að þetta komi ekki á óvart enda hafi ríkisstjórnin þurft að taka stórar og erfiðar ákvarðanir. „Þegar þetta er allt lagt saman og þessar afbrigðilegu og óvenjulegu og erfiðu aðstæður sem við höfum verið að glíma við þá þarf það ekki að koma neinum sérstaklega á óvart þó að við gefum eitthvað eftir í fylgi," segir Steingrímur. Spurður hvort ríkisstjórnin lifi enn eitt neiið í Icesave málinu segir Steingrímur: „Já. Við höfum passað það að tengja þetta ekki á nokkurn hátt við ríkisstjórnina. Þetta eru lög sem meiri en tveir þriðju hluti alþingismanna samþykktu þannig að það snýr meira að þinginu sem stofnun og samskiptum þess við þjóðina ef að lögunum yrði synjað framtíðargildi."
Tengdar fréttir Stuðningur við ríkisstjórnina hríðfellur Stuðningur við ríkisstjórnarflokkanna hríðfellur samkvæmt skoðanakönnun MMR og hefur tekið afar miklum breytingum frá kosningunum í apríl 2009. Líkt og fram kom fram fyrr í kvöld er Sjálfstæðisflokkurinn sá stjórnmálaflokkur sem nýtur nú langmest stuðnings. 6. apríl 2011 21:19 Óvinsældir stjórnarinnar skila sér í neii "Stjórnarflokkarnir eru að tapa gríðarlegu fylgi á sama tíma og Icesave-nei-ið virðist vera í uppsveiflu. Þannig að það virðist vera einhver tilhneiging þar, en maður skyldi hafa einhvern fyrirvara á því,“ segir Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri, um nýja skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokkanna og afstöðu almennings til Icesave-laganna. 6. apríl 2011 22:15 Bjarni segir að ríkisstjórnin verði að boða til kosninga Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að fylgishrun Já-hreyfingarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave skýrist fyrst og fremst af óvinsældum ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin þurfi að boða til kosninga til að ná fram málefnalegri niðurstöðu í atkvæðagreiðslunni um Icesave. 7. apríl 2011 13:43 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira
Stuðningur við ríkisstjórnina hríðfellur Stuðningur við ríkisstjórnarflokkanna hríðfellur samkvæmt skoðanakönnun MMR og hefur tekið afar miklum breytingum frá kosningunum í apríl 2009. Líkt og fram kom fram fyrr í kvöld er Sjálfstæðisflokkurinn sá stjórnmálaflokkur sem nýtur nú langmest stuðnings. 6. apríl 2011 21:19
Óvinsældir stjórnarinnar skila sér í neii "Stjórnarflokkarnir eru að tapa gríðarlegu fylgi á sama tíma og Icesave-nei-ið virðist vera í uppsveiflu. Þannig að það virðist vera einhver tilhneiging þar, en maður skyldi hafa einhvern fyrirvara á því,“ segir Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri, um nýja skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokkanna og afstöðu almennings til Icesave-laganna. 6. apríl 2011 22:15
Bjarni segir að ríkisstjórnin verði að boða til kosninga Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að fylgishrun Já-hreyfingarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave skýrist fyrst og fremst af óvinsældum ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin þurfi að boða til kosninga til að ná fram málefnalegri niðurstöðu í atkvæðagreiðslunni um Icesave. 7. apríl 2011 13:43