Óæskileg hegðun nemenda er helmingi minni en áður 30. maí 2011 06:00 Hegðun barna á öllum skólastigum var mæld í rannsókninni og voru marktækar breytingar á hegðun á öllum stigum.fréttablaðið/anton
Jákvæð samskipti kennara og nemenda í þremur skólum í Reykjanesbæ; Njarðvíkurskóla, Myllubakkaskóla og Holtaskóla, hafa aukist til muna. Óæskileg hegðun nemenda hefur snarminnkað. Þetta eru niðurstöður nýrrar umfangsmikillar rannsóknar á innleiðingu PBS (Positive Behavior Support) í skólana þrjá og árangur sem af því hlaust. Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar sem gerð hefur verið á Íslandi og ein sú umfangsmesta í Evrópu. Kolbrún Ingibjörg Jónsdóttir gerði meistararitgerð sína um rannsóknina og segir hún fyrstu niðurstöður benda til þess að áhrifa PBS-kerfisins sé strax farið að gæta í jákvæðri athygli starfsfólks, umbun fyrir góða hegðun og virku eftirliti. PBS er hannað til þess að styrkja æskilega hegðun starfsfólks og nemenda til þess að fyrirbyggja og draga úr erfiðri hegðun. Innleiðing kerfisins tekur um þrjú til fimm ár og það er yfirleitt ekki fyrr en í fyrsta lagi á öðru framkvæmdarári sem farið er yfir notkun starfsfólks á aðferðum til að breyta hegðun nemenda. Í niðurstöðunum kom meðal annars fram að óæskileg hegðun nemenda á yngsta stigi í kennslustofum skólanna þriggja hefði minnkað um helming síðan PBS var innleitt. Jákvæð athygli starfsfólks hefur þá aukist til muna og hefur hlutfallið nær þrefaldast. Óviðeigandi hunsun starfsfólks hefur einnig minnkað um helming. Gylfi Jón Gylfason, yfirsálfræðingur hjá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar, fékk hugmyndina að rannsókninni ásamt Zuilmu Gabríelu Sigurðardóttur. Tildrög rannsóknarinnar var mastersritgerð Ragnheiðar Sifjar Gunnarsdóttur, sem sá um verkefnið fyrstu árin og safnaði gögnum áður en innleiðing PBS hófst. Rannsóknin er unnin í samstarfi Reykjanesbæjar og Háskóla Íslands. Gylfi Jón segir einar merkilegustu niðurstöðurnar vera þær að á sama tíma og hér gangi yfir efnahagshrun og atvinnuleysi, þar sem Reykjanesbær varð hvað verst úti, séu kennarahóparnir almennt jákvæðari í dag en fyrir hrun. „Þetta er þvert á það sem maður hefði haldið að hrunið hefði haft áhrif á. Þá hefur dregið stórkostlega úr agavandamálum síðan við hófum innleiðingu kerfisins, “ segir Gylfi Jón. „Svona hugarfar ætti að vera öðrum til fyrirmyndar.“ sunna@frettabladid.is
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Sjá meira