Vilja Ísland úr Nató 30. maí 2011 21:00 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Mynd/Stefán
Þingflokkur Vinstri grænna og þremenningarnir sem sögðu skilið við þingflokkinn fyrir skömmu hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að Ísland segi sig úr Atlantshafsbandalaginu, Nató. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Í greinargerð með tillögunni segir að í stað þess að slíðra sverðin í þágu friðar við lok kalda stríðsins hafi Nató farið í útrás með gríðarlegri hernaðaruppbyggingu um víða veröld. „Ísland gumar að því að vera herlaust og friðsamt land. Á sama tíma leggur Ísland beint eða óbeint blessun sína yfir hernaðaraðgerðir á vegum bandalagsins sem stofnað er til í því skyni að verja grímulausa hagsmuni forusturíkja þess,“ segir í greinargerðinni. Þá segja þingmennirnir að með loftárásum Atlantshafsbandalagsins á Líbíu sé Ísland enn á ný orðið beinn aðili að styrjaldarátökum. „Blóði drifin saga Natós og forusturíkja þess í bæði Írak og Afganistan ætti með réttu að vera fullt tilefni til þess að fólk allra flokka á Alþingi sameinaðist í þeirri kröfu að Ísland segði sig úr bandalaginu.“ Í lok greinargerðarinnar segir: „Það er brýnt að Ísland sýni í verki að það er sjálfu sér samkvæmt, herlaust og andvígt hernaðarofbeldi. Öllum er ljóst að þær ógnir sem helst steðja að Íslandi eru ekki hernaðarlegs eðlis. Þjóð sem vill vera herlaus og friðsöm á að halda sig utan hernaðarbandalaga. Eftir hálfa öld og óforsvaranleg voðaverk er mál að linni. Því ber að segja Ísland úr Nató.“
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira