Sveiflukennt sumar hjá frjókornunum 27. júlí 2011 05:30 Margrét Hallsdóttir
Frá miklatúni Þurrt og vindasamt veður er kjörveður fyrir frjókorn. Til að þau valdi ofnæmisviðbrögðum þarf mikið magn en auk þess þurfa þau að innihald ofnæmisvaka.fréttablaðið/vilhelmMynd/vilhelm Magn frjókorna í andrúmsloftinu í Reykjavík hefur sveiflast mikið það sem af er sumri. Um tíma leit út fyrir að frjókornamagnið myndi jafnast á við metsumarið í fyrra en síðustu daga hefur það heldur minnkað. „Síðustu daga hafa frjótölur verið nokkuð lágar ef frá er skilinn laugardagurinn þegar hvessti nokkuð. Í dag [í gær] fór svo að rigna þannig að ef veðrið helst svona næstu daga geta ofnæmissjúklingar andað léttar í bili. En svo er reyndar ástandið verra úti á landi, á Akureyri og Egilsstöðum þar sem er gott veður núna,“ segir Margrét Hallsdóttir sem sér um frjómælingar hjá Náttúrufræðistofnun. Það eru aðallega grasfrjó sem valda fólki óþægindum á þessum tíma ársins. Birkifrjó og súrfrjó valda einnig ofnæmisviðbrögðum en þau eru mest áberandi í lok maí og júní. Kuldatíðin í upphafi sumars gerði það hins vegar að verkum að lítið var af frjóum í upphafi sumars. „Sé sumarið í ár borið saman við sumarið í fyrra byrjuðu háar frjótölur hér töluvert seinna en í fyrra. Það hefur vafalaust verið vegna þess að það var kaldara í byrjun sumars,“ segir Margrét. Spurð um ástæður mikils magns grasfrjós um miðjan mánuðinn segir Margrét að þurrkatíð hafi haft mest um það segja. Þá hafi einnig sennilega haft áhrif að sláttur á túnum borgarinnar hefur verið stopulli en áður. Þrátt fyrir að frjótölur hafi nú dottið niður segir Margrét þá sem glíma við frjókornaofnæmi þó ekki alveg sloppna. „Það er mjög oft toppur á þessum tíma í lok júlí ef það er þurrt. En svo kemur stundum toppur aftur í fyrstu eða annarri vikunni í ágúst,“ segir Margrét og bætir við: „Það fer í raun eftir því hvort það verður þurrt eða ekki. Verði þurrt og vindasamt má búast við miklu af frjókornum aftur.“ Til að frjókorn valdi ofnæmisviðbrögðum þurfa þau að vera til staðar í miklu magni en einnig að innihalda ofnæmisvaka sem er eggjahvítuefni sem líkami fólks með ofnæmi skynjar sem hættulegt efni, segir á vef Náttúrufræðistofnunar. magnusl@frettabldid.is
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Sjá meira