Hanna Birna: Sameiningin þvinguð í gegn Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 18. apríl 2011 19:15
Borgarráð samþykkti í morgun tillögur um samrekstur og sameiningu skóla, leikskóla og frístundaheimila í Reykjavík. Fulltrúi minnihlutans segir meirihlutann þvinga í gegn sameiningar í algjörri andstöðu við borgarbúa. Tillögurnar verða teknar fyrir á fundi borgarstjórnar á morgun, en það er nánast formsatriði þar sem borgarráð hefur þegar samþykkt þær. Yfir 12.000 íbúar í Reykjavík hafa skorað á borgarstjórn og rúmlega 90 prósent umsagna vegna málsins voru neikvæðar þar sem ítrekað hefur verið að draga beri tillögurnar til baka. Sameina á yfirstjórnir 24 leikskóla borgarinnar í ellefu. Einnig eru umfangsmiklar sameiningar í yfirstjórn grunnskóla. Frestað var sameiningum skóla í Breiðholti og Vesturbæ en þær breytingar höfðu mætt harðri andstöðu. Þá var lagt til að sameina yfirstjórn á menntasviði og ÍTR undir einn sviðsstjóra. „Við teljum augljóst miðað við þessar tillögur sem lagðar voru fram í dag að meirihlutinn ræður einfaldlega ekki við brýnustu verkeni borgarbúa, það eru hérna þvingaðar í gegn skólasameiningar um alla borg í algjörri andstöðu við allt foreldrasamfélag og starfsfólkið hér í Reykjavíkurborg," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Ég vildi óska að þessi meirihluti myndi einhverntíma setja ákvarðanir og verkefni í sáttafarveg en ekki átakafarveg, það er eins og það sé lenskan hér og línan hér og það er vont," segir Hanna. Hanna Birna segir að erfitt verði að ná fram þeirri 300 milljóna hagræðingu sem meirihlutinn ætli sér að ná með þessu. „Ég held að þeir séu ekki þessum vanda vaxnir, og mér finnst þessi atburðarás í kringum þessa ákvarðanatöku sýna það að þeir geta ekki tekið á brýnustu hagsmunamálum borgarbúa, allavega ekki svo að sómi sé af," segir Hanna Birna.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira