Óboðleg stöðnun í sjávarútvegi 14. janúar 2011 15:33 Vilhjálmur Egilsson að svartsýni meðal stjórnenda í sjávarútvegi megi rekja til þeirrar óvissu sem stjórnvöld hafi skapað í greininni „
Óvissan um framtíð fiskveiðistjórnunar og sífelldar illa ígrundaðar yfirlýsingar stjórnmálamanna hafa stöðvað allar ákvarðanir í sjávarútvegsfyrirtækjum um umtalsverðar fjárfestingar." Þetta kemur fram í grein sem Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtakanna atvinnulífsins, birtir á vef samtakanna. Hann segir að í könnunum á viðhorfum stjórnenda í sjávarútvegi komi fram að yfirgnæfandi fjöldi þeirra telur aðstæður í efnahagslífinu slæmar þrátt fyrir að gengi krónunnar sé útflutningsgreinum hagstætt um þessar mundir. Að mati Vilhjálms verða þessi viðhorf ekki rakin til neins annars en þeirrar óvissu sem stjórnvöld hafa skapað í greininni og kallar hann eftir aðgerðum Samtök atvinnulífsins telja þá leið vænlegasta frá núverandi stöðnun að fjárfestingar og útflutningur aukist, og þannig skapist atvinna í bráð og lengd. Slík leið er líklegri til árangurs en tímabundinn vöxtur byggður á aukinni einkaneyslu eða hallarekstri ríkissjóðs. „Lengi hafa verið deilur um stjórn fiskveiða. Í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur starfað og lokið störfum sérstök endurskoðunarnefnd sem náði víðtækri sátt um málið. Aðild að þeirri sátt áttu fulltrúar stjórnarflokkanna, tveggja stærstu stjórnarandstöðuflokkanna og allra helstu hagsmunasamtaka í sjávarútvegi, bæði fyrirtækja og starfsfólks. Verkefni ríkisstjórnar og Alþingis er að semja frumvarp úr þeirri sátt sem síðan þarf að afgreiða sem lög. Óskiljanlegt er, og alls ekki boðlegt, hversu tafist hefur að ganga frá í lagabúning þeirri víðtæku sátt sem náðist. Segja má að sjávarútvegi sé haldið í gíslingu stjórnarflokkanna. Samtök atvinnulífsins þrýsta því á af fullum þunga að málið sé klárað. Það er ein lykilforsenda fyrir sókn þjóðarinnar út úr kreppunni og hefur afgerandi þýðingu fyrir getu atvinnulífsins til þess að taka á sig launahækkanir," segir Vilhjálmur í greininni.
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Fleiri fréttir Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Sjá meira