Bryggjuhverfisbúar sviknir um brotthvarf sandvinnslu 13. janúar 2011 05:45 Ásgeir Erling Gunnarsson, formaður íbúasamtaka Bryggjuhverfisins, segir borgina vilja spyrða hverfið saman við Grafarvog en þar hafi menn engan áhuga á málefnum Bryggjuhverfisins. Í bakgrunni sést grasmön við lóð Björgunar sem fyrirtækið útbjó til að hefta sandfok.Fréttablaðið/Stefán
Ásgeir Erling Gunnarsson, formaður bryggjuráðsins, sem er íbúaráð Bryggjuhverfisins í Reykjavík, segir borgina hafa gert hverfið algerlega hornreka. Fyrirtækið Björgun hóf byggingu Bryggjuhverfisins við hlið athafnasvæðis síns í Grafarvogi laust fyrir síðustu aldamót. Ásgeir segir frumbyggjunum hafa verið lofað því að Björgun yrði farin af lóð sinni vestan við íbúabyggðina árið 2000 og að síðan yrði lokið við að byggja hverfið upp. Síðasta dagsetningin sem gefin hafi verið upp fyrir brotthvarf Björgunar hafi verið 9. september í haust sem leið. „Björgun hefur margsinnis ítrekað að fyrirtækið er tilbúið til að fara um leið og borgin hefur tilbúna lóð sem er búið að lofa því uppi í Álfsnesi,“ segir Ásgeir. Hann ítrekar að borgin verði að svara því hvað eigi að vera á svæðinu þar sem Björgun er nú að hefjast handa við skipulagningu þess. Ljúka verði við hverfið svo það nái eðlilegri stærð. Í dag sé það aðeins um þriðjungur þess sem það ætti að vera með um sjö hundruð íbúum. „Börnin sækja skóla í Hamrahverfinu. Það er einfaldlega engin þjónusta frá borginni inni í þessu hverfi – ekki eitt einasta strætóskýli.“ Ásgeir segir borgaryfirvöld spyrða Bryggjuhverfið við Grafarvoginn. Hann sé áheyrnarfulltrúi Bryggjuhverfisins í hverfisráði Grafarvogs þar sem undirtektir við málstað Bryggjuhverfisins séu engar. „Ég held að ég segi mig úr hverfisráðinu ef það gerist ekkert á næsta fundi,“ segir hann. Bryggjuhverfið er kennt við smábátahöfn sem Björgun gerði. Að sögn Ásgeirs tók Reykjavíkurborg höfnina yfir fyrir nokkrum misserum samkvæmt fyrri samningi við Björgun. Síðan hafi verulega sigið á ógæfuhliðina. „Við í stjórn íbúasamtakanna höfum miklar áhyggjur af því að höfnin sé að fyllast af sandi. Björgun hefur haldið þessu hreinu og dýpkað undanfarin ár en síðasta sumar var borgin komin í spilið og þá var nánast engin dýpkun. Mér sýnist útlitið ekki gott og ég veit eiginlega ekki við hvern á að tala í dag hjá þessari blessaðri borg,“ segir Ásgeir sem kveður tíu til tuttugu báta nota smábátahöfnina á sumrin. Eigendur bátanna séu bæði íbúar Bryggjuhverfisins og aðrir. „Þeir myndu væntanlega vera miklu fleiri ef höfnin væri eins og höfn á að vera – með innsiglingarljós og rétt dýpi svo bátarnir taki ekki niðri á fjöru.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Veður Fleiri fréttir Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Sjá meira