120 íslenskar bækur þýddar á þýsku 13. janúar 2011 13:00 120 íslenskir titlar koma út á þýsku á næstu mánuðum í tilefni af bókamessunni í Frankfurt en Ísland er þar heiðursgestur. Halldór segir töluna fara fram úr hans væntingum. Mynd/Anton „
Við höfðum gert okkur vonir um að þetta yrðu kannski hundrað titlar þannig að þetta fer fram úr því sem við bjuggumst við,“ segir Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri Sögueyjunnar Íslands, sem heldur utan um heiðursgestahlutverk Íslands á bókamessunni í Frankfurt en hún verður formlega sett í október. 120 íslenskir titlar koma út á þýsku á næstu mánuðum og Halldór segist reikna með að verk yfir áttatíu höfunda verði aðgengileg á þýsku. „Þarna inni á milli eru safnrit, ljóða- og smásagnasöfn þannig að höfundarnir gætu verið miklu fleiri.“ Ísland verður áberandi á alls konar viðburðum í Þýskalandi sem tengjast skáldagyðjunni með beinum og óbeinum hætti. Þannig verður í júní blásið til mikillar íslenskrar ljóðaveislu í ellefu þýskum borgum þar sem íslensk ljóðlist verður kynnt. Þá er ráðgert að bókasýning fari fram í Leipzig þar sem fimm íslenskir rithöfundar verða gestir. Punkturinn yfir i-ið er síðan sjálf bókamessan í október þar sem sjö þúsund sýnendur frá hundrað löndum mæta á svæðið með verk sín. Halldór segist ekki vita hversu margir íslenskir rithöfundar séu búnir að bóka farseðil til Þýskalands en annar hver maður í Rithöfundasambandinu hljóti að minnsta kosti að vera velta þeim möguleika fyrir sér. „Við höfum verið að tala við öll forlögin sem gefa út íslenskar bækur og spyrja þau hvort þau vilji fá íslenska höfunda út til sín í frekari kynningar.“- fgg
Mest lesið Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Innlent Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Innlent Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Innlent Dóttirin í Súlunesi ákærð Innlent Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Erlent Maxwell biðlar til Hæstaréttar Erlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Erlent „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Innlent Fleiri fréttir Engin fjármögnun gereyðingarvopna á Íslandi Enn varað við svikapóstum: „Við hlökkum til að fá jákvæða svörun frá þér“ Samstarfið við Íra og Frakka tímafrekt Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Rannsaka áhrif samfélagsmiðla á heilastarfsemi barna Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Mögulegur fyrirboði um goslok Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Enn gýs úr einum megingíg og virknin nokkuð stöðug Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Áhyggjur af tollum ESB, olíuþjófur gómaður og fífldjarfir ferðamenn „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Árekstur í Öxnadal Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Ekkert hægt að gera nema húseigendur kæri Sjá meira