Breytingar á ósum Markarfljóts ekki í umhverfismat Karen Kjartansdóttir skrifar 11. janúar 2011 14:25
Breytingar á ósum Markarfljóts þurfa ekki að fara í Umhverfismat að mati Skipulagsstofnunar. Landeigandi í nágrenni fljótsins segir stórvarasamt að eiga við fljótið en fellst á þær breytingar sem nú hefur verið ráðist í. Siglingastofnun segir breytingar á ósum fljótsins nauðsynlegar til að koma í veg fyrir að Landeyjahöfn skemmist í leysingum í vor sem mun verða til þess að gríðarlegt gjóskumagn mun berast með fljótinu til hafnarinnar. Eins og fréttastofa greindi frá í gær er vinna þegar hafin við að færa ósa stórfljótsins austur frá höfninni án þess að umhverfismat hafi verið gert. Þessar framkvæmdir gera ráð fyrir að ósar fljótsins færist um 400 metra til austurs með 600 metra löngum varnargarði sem liggur mjög nálægt sjó. Garðinum er ætlað að að verja höfnina fyrir gjósku úr fljótinu næstu tvö ár en hann á síðan að fjarlægja af Siglingastofnun. Siglingastofnun ábyrgist einnig að garðurinn verði rofinn ef fljótið brýtur sér leið austur við ósa Markarfljóts. Fyrstu tillögur um þær framkvæmdir kváðu á um að ósarnir yrðu færðir um allt að tvo kílómetra en þær tillögur mættu mikilli mótstöðu og var þess krafist að Skipulagsstofnun færi fram á að umhverfismat yrði gert. Meðal þeirra gagnrýni sem barst um framkvæmdirnar var frá landeigendum í nágrenni fljótsins. Kristján Ólafsson er ábúandi á Seljalandi. Hann segir að hefði verið ráðist í stærri framkvæmdirnar hefði hætta geta skapast í kring enda fljótið hættulegt, einkum í langvarandi frostum. „Þá lónar það allt uppi og leitar stystu leiðar undan halla jafnvel upp að fjalli og austur með og austur í Hólsós. Það hefur gerst áður það hafa komið klakastíflur í Markarfljót sem hafa rofið hér Seljalandsgarðinn svokallaða, þannig þetta er mjög varasamt fljót," segir Kristján. Hann segist þó nokkuð sáttur við þær framkvæmdir sem nú hefur verið ráðist í þótt hann ítreki að alltaf sé varasamt að eiga við Markarfljót. „Við teljum að þetta skapi í það minnsta minni hættu en hefði orðið með tveggja kílómetra færslunni." Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri Ragnárþings eystra segir að sveitastjórnin hafi talið sér fært að veita framkvæmdaleyfi eftir að hafa farið yfir umsögn Skipulagsstofnunnar en á henni byggði Umhverfisstofnun sína umsögn en í henni segir meðal annars að áhrifasvæði framkvæmdarinnar sé innan núverandi farvegs Markarfljóts og hefur áin áður runnið um fyrirhugað framkvæmdasvæði. Umhverfisstofnun geri því ekki ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Fleiri fréttir Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Sjá meira