Barði föðurinn fyrir framan börnin 11. janúar 2011 06:00 Skotárásin Einn byssumanna leiddur fyrir dómara.
Fórnarlamb handrukkara, sem varð fyrir byssuárás ásamt fjölskyldu sinni í Bústaðahverfi á aðfangadag, kveðst hafa orðið fyrir síendurteknu ónæði af hendi rukkaranna. Maðurinn hefur borið fyrir lögreglu að hann hafi um nokkurt skeið þurft að þola hótanir og líkamsárásir frá nafngreindum manni og félögum hans. Þessi maður hafi margsinnis reynt að rukka hann vegna fíkniefnaviðskipta og segir fórnarlambið atgang hans hafa verið mjög ógnandi og hættulegan. Heimilisfaðirinn segir að maðurinn hafi heimsótt sig 21. desember. Þegar hann hafi farið til dyra hafi rukkarinn barið sig fyrir framan börn sín. Fyrir atlöguna á aðfangadag hafi þessir menn komið að heimilinu að kvöldi Þorláksmessu og verið með mikinn fyrirgang. Á aðfangadag jóla hafi menn sem hann telji vafalaust vera á vegum þessa sama manns, þeir sömu og hafi komið á Þorláksmessu, komið og bankað á dyr. Hann hafi þá verið búinn að koma konu sinni og börnum út um bakdyr og til nágranna sinna. Þegar þeir hafi bankað hafi hann stuggað þeim frá með því að stinga járnröri út um bréfalúgu. Síðan hafi hann farið út um bakdyr og til nágranna sinna. Þá hafi mennirnir greinilega skotið í útihurðina og inn um hana. - jss
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Sjá meira