Í varðhald vegna nauðgunar á skemmistað 11. janúar 2011 05:45 Lögreglan handtók hinn grunaða á sunnudag.
Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag vegna gruns um að hann hefði nauðgað konu í Reykjavík um nýliðna helgi. Maðurinn kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Atvikið átti sér stað aðfaranótt sunnudagsins á skemmtistað í Reykjavík. Eftir því sem næst verður komist var konan, sem einnig er á fimmtugsaldri, mjög ölvuð á staðnum. Maðurinn var inni á salerni skemmtistaðarins á sama tíma og hún og beitti hana kynferðislegu ofbeldi. Þau þekktust ekki. Konan fór á neyðarmóttöku á Landspítala fyrir fórnarlömb kynferðisofbeldis. Síðan kærði hún atvikið til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem fer með rannsókn málsins. Maðurinn var handtekinn í fyrradag eftir að rætt hafði verið við vitni og upptökur úr öryggismyndavélum höfðu verið skoðaðar. Hann hefur neitað sök, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Umræddur maður er erlendur ríkisborgari en hefur unnið hér á landi um skeið. Hann hefur ekki komið við sögu hjá lögreglu áður.- jss
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Erlent Fleiri fréttir Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Sjá meira