Kærði til Persónuverndar þegar hann fékk ekki tímana greidda Valur Grettisson skrifar 9. febrúar 2011 14:39 Þreyttur vörubílstjóri. Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Persónuvernd úrskurðaði í janúar að flutningafyrirtæki á Grundarfirði megi fylgjast með starfsmönnum sínum í gegnum ökurita. Það var starfsmaður fyrirtækisins sem kvartaði til Persónuverndar eftir að fyrirtækið neitaði að greiða alla tímana sem hann sagðist hafa unnið. Í póstsamskiptum á milli Persónuverndar við báða aðila kemur fram að starfsmaðurinn hafi haldið því fram að hann hafi ekið í 387 tíma á einum mánuði. Fannst forsvarsmönnum fyrirtækisins þetta heldur mikið og könnuðu því ökuritann. Hann sagði allt aðra sögu, en þar kom fram að bíllinn hefði verið ekinn í 162 tíma. Þá keyrði hann 100 klukkustundum lengur en aðrir starfsmenn samkvæmt hans tímabókhaldi, en þeir tóku sérstaklega fram að starfsmaðurinn hefði ekki unnið lengur en samstarfsfélagarnir á hverjum degi. Sér til varnar hélt starfsmaðurinn því fram að hann hefði ekið fleiri en einum bíl auk þess sem starfið fólst ekki eingöngu í því að aka bifreiðunum, heldur lesta þá, losa og þrífa. Slíkt kæmi ekki fram í ökuritanum. Persónuvernd tekur að sjálfsögðu ekki afstöðu til vinnulaunamálsins, en kemst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið megi fylgjast með bílum sínum í ljósi þess að þeir eru ekki notaðir í tengslum við einkalíf starfsmanna. Aftur á móti kemst Persónuvernd að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið hefði átt að kynna ökuritann fyrir starfsmanninum. Fyrirtækið hafði reyndar kynnt það fyrir starfsmönnum sínum áður en umræddur starfsmaður hóf störf.
Mest lesið Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags Innlent Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Innlent Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Innlent Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Fleiri fréttir Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu Sjá meira