Lamdi konu og sagðist þekkja menn í Fáfni 1. júní 2011 10:10 Héraðdómur Reykjanes.
Rétt rúmlega tvítugu karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ráðast á konu í samkvæmi í apríl árið 2009. Hann er sakfelldur fyrir að hafa slegið hana með flötum lófa í andlitið þannig að hún féll í gólfið, svo steig hann ofan á höfuð hennar þar sem hún lá á gólfinu og togað í hár hennar. Síðan greip hann með báðum höndum um axlir hennar, reif hana á fætur, hristi hana til og tók hana hálstaki með þeim afleiðingum að hún hlaut mar í hársverði, andliti og á hálsi, eyra og brjóstkassa auk þess sem hún tognaði á hálsi. Maðurinn neitaði sök. Atvikið átti sér stað í samkvæmi og má rekja upphaf málsins til þess að þrír piltar töluðu illa um hana vegna föður hennar og atviks sem hefði átt sér stað fyrir nokkru síðan. Sá sem hefði haft sig mest í frammi hafi verið hinn dæmdi. Kona fór í vörn og svaraði strákunum fullum hálsi. Þá tók hinn dæmdi hana kverkataki með annarri hendi og spurt hvort hún vissi hversu margar stelpur hann hefði lamið. Því næst sló hann hana með krepptum hnefa í andlitið með þeim afleiðingum að hún féll í gólfið. Næst mundi stúlkan eftir því að maðurinn hefði staðið yfir henni með annan fótinn á andliti hennar þar sem hún hafi legið í gólfinu. Þá hafi hinn dæmdi, þegar hann stóð yfir henni, sagt að hann þekkti menn í Fáfni, sem nú eru orðnir Hells Angels, og engu skipti hver faðir hennar væri og hverja hann þekkti. Sjálfur neitaði maðurinn sök í málinu. Hann lýsir aðdraganda málsins þannig að konan hefði verið með leiðindi í samkvæminu og þau farið að rífast. Hún ýtti við honum og hann hefði þá rifið hana niður og haldið henni niðri á meðan hún lét öllum illum látum. Hinn dæmdir sagði fyrir dómi að það gæti verið að hann hefði misst stjórn á sér og viðurkenndi að hann hefði rifið hana harkalega niður og hann gæti hafa meitt hana. Hann neitar hins vegar að hafa slegið hana, stigið á höfuð hennar, tekið hana hálstaki, gripið um axlir hennar eða rifið í hár hennar, en það gæti þó verið að hann hefði óvart tekið í hár hennar. Dómurinn tók þessar útskýringar ekki trúanlegar og taldi læknisvottorð styðja framburð konunnar. Var maðurinn því dæmdur í fangelsi í einn mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum haldi maðurinn almennt skilorð.
Mest lesið Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Innlent B sé ekki best Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Albanese segir Netanyahu í afneitun Erlent Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu Erlent Fleiri fréttir Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Sjá meira