Rannsóknin grundvallast á fleiri vísbendingum en kæru FME 1. júní 2011 12:04 Lýður Guðmundsson var aðaleigandi Exista. Mynd/Haraldur
Rannsókn sérstaks saksóknara á tryggingarfélaginu VÍS grundvallast ekki aðeins á kæru Fjármálaeftirlitsins heldur nýjum vísbendingum sérstaks saksóknara. Skýrslutökur yfir sakborningum halda áfram í dag. Yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara í tengslum við rannsókn á málefnum VÍS halda áfram í dag. Ólafur Þór Haukssonn, sérstakur saksóknari, sagði við fréttastofu í morgun að yfirheyrslur gengu vel. Aðspurður hvort sakborningar hefðu verið samvinnuþýðir við skýrslutöku sagði Ólafur Þór að embætti hans gæti ekkert tjáð sig um það sem fram færi í yfirheyrslum. Hann sagði ágætis framvindu í rannsókninni. Þungamiðjan í rannsókninni eru meint brot á lögum um vátryggingarstarfsemi, og þá er grunur um umboðssvik. Efnislega er um að ræða óhóflegar og óeðlilegar lánveitingar VÍS til tengdra aðila, m.a til eigandans eignarhaldsfélagsins Exista. Meðal þess sem er til rannsóknar eru lánveitingar árin 2008-2010, eftir bankahrunið. Umboðssvik virðast vera rauði þráðurinn í langflestum málum sem eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Fjöldi bankastjórnenda í Svíþjóð og Finnlandi voru sakfelldir eftir bankahrunið í þessum löndum á tíunda áratug síðustu aldar fyrir brot sem samsvara umboðssvikum, en þeir höfðu veitt stór lán án trygginga. Fá fordæmi eru hins vegar til hér á landi. Exeter-málið, sem nú er í ákærumeðferð fyrir dómi, er því mikilvægur prófsteinn fyrir aðrar rannsóknir sérstaks saksóknara, eins og rannsókn á málefnum VÍS. Lýður Guðmundsson sem var aðaleigandi Exista, Erlendur Hjaltason fyrrverandi forstjóri Exista, Bjarni Brynjólfsson sem var framkvæmdastjóri eigin viðskipta hjá Existu og Guðmundur Örn Gunnarsson sem hefur verið forstjóri VÍS voru færðir til skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara í gær. Húsleit var jafnframt gerð hjá VÍS og Existu í dag vegna málsins. Alls hafa tíu verið yfirheyrðir í hjá embættinu í gær og í dag.
Tengdar fréttir Yfirheyrslum lokið Yfirheyrslum vegna rannsóknar embættis sérstaks saksóknara á málefnum VÍS er lokið í bili. Ekki verður farið fram á fjórmenningarnir sem handteknir voru í dag verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þetta staðfesti Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við fréttastofu. Yfirheyrslum lauk um áttaleytið. 31. maí 2011 20:58 Guðmundur og Erlendur látnir lausir Guðmundur Örn Gunnarsson, fyrrverandi forstjóri VÍS, og Erlendur Hjaltason, fyrrverandi forstjóri Existu, hafa verið látnir lausir úr haldi lögreglu. Þeir voru færðir til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í dag vegna rannsóknar embættisins á lánveitingum VÍS á árunum 2007-2009. 31. maí 2011 17:58 Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Sjá meira
Yfirheyrslum lokið Yfirheyrslum vegna rannsóknar embættis sérstaks saksóknara á málefnum VÍS er lokið í bili. Ekki verður farið fram á fjórmenningarnir sem handteknir voru í dag verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þetta staðfesti Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við fréttastofu. Yfirheyrslum lauk um áttaleytið. 31. maí 2011 20:58
Guðmundur og Erlendur látnir lausir Guðmundur Örn Gunnarsson, fyrrverandi forstjóri VÍS, og Erlendur Hjaltason, fyrrverandi forstjóri Existu, hafa verið látnir lausir úr haldi lögreglu. Þeir voru færðir til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í dag vegna rannsóknar embættisins á lánveitingum VÍS á árunum 2007-2009. 31. maí 2011 17:58