Þyngja dóm vegna alvarlegra afleiðinga líkamsárásar 1. júní 2011 16:38
Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm yfir Andra Vilhelm Guðmundssyni um hálft ár, er hann því dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa veist með ofbeldi að manni síðustu áramót með þeim afleiðingum að hann féll í gangstétt. Síðan sparkaði Andri ítrekað í höfuðið mannsins þar sem hann lá. Afleiðingar árásarinnar urðu þær að fórnarlambið hlaut lífshættulegan höfuðáverka, þ.e. höfuðkúpubrot með utanbastsblæðingu undir brotinu hægra megin á gagnaugasvæði og heilamar vinstra megin í gagnstæðum hluta heila. Við ákvörðun refsingar Andra var litið til þess að árásin var lífshættuleg og hafði í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir fórnarlambið. Kemur meðal annars fram í úrskurði Hæstaréttar að brotaþoli hafi verið til meðferðar á endurhæfingardeild Landspítalans frá 17. janúar vegna heilaáverkans, sem hann hlaut við árás Andra. Fórnarlambið glímir enn við töluverðar afleiðingar áverkans og er með „hugræna skerðingu“. Taugasálfræðilegt mat hafi sýnt talsverða og fjölþætta áunna taugasálfræðilega veikleika, meðal annars minnisskerðingu og skert vinnsluminni, einbeitingu, úthald og skipulag samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar. Einnig eigi hann erfitt með orðminni og sé þvoglumæltur. Þá hafi hann verki í útlimum og beri merki kvíða og þunglyndis.
Mest lesið Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Innlent Fleiri fréttir Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Sjá meira